Byrjaðu daginn vel með einum smelli. Með flýtihnappinn við rúmið geturðu samtímis kveikt á ljósum, dregið upp rúllugardínurnar og spilað uppáhaldslagið þitt, um leið og þú vaknar.
Kveiktu á senum með tímastilli eða handvirkt með flýtihnappi eða appinu. Til dæmis getur þú slökkt á öllum ljósum og öðrum snjallvörum með einum hnappi þegar þú ferð úr að morgni dags.
Með snjallvörum úr IKEA verður ýmislegt einfaldara þegar kemur að lýsingu, hátölurum, rúllugardínum og lofthreinsitækjum.
Gerðu SOMRIG að hetju snjallheimilisins með því að bæta við senum úr IKEA Home Smart appinu. Settu 1-6 senur úr appinu og veldu hvort þú kveikir á þeim með því að ýta einu sinni, tvisvar eða lengi.
Vistaðu uppáhaldsstillingarnar þínar á einfaldan hátt í IKEA Home smart appinu, með hjálp DIRIGERA gáttar. Þú býrð til ákveðnar senur og kveikir svo á þeim eftir hentisemi. Þá er öllum snjallvörunum í þeirri senu stýrt á sama tíma.
SOMRIG, RODRET og STYRBAR fjarstýringarnar eru með svipað útlit og fara því vel saman, hvort sem þær eru á sófaborðinu, á ísskápnum eða festar upp á vegg.
Einnig er hægt að nota þessa snjallvöru með TRÅDFRI gátt og stýra henni með IKEA Home smart 1 appinu. Hvaða eiginleikar eru í boði fer eftir því hvaða gátt þú ert með og hvaða app hún er tengd við.