Stillanlegar hliðar á rúminu gera þér kleift að nota misþykkar dýnur.
Rimlabotn með 17 rimlum úr límtré sem laga sig að þyngd líkamans og færa dýnunni aukinn sveigjanleika.
Höfðagaflinn er hár og því getur þú setið í þægindum í rúminu – komdu fyrir nokkrum púðum og njóttu þess að lesa eða horfa á sjónvarpið.
Það er auðvelt að ryksuga undir rúminu til að halda rýminu hreinu og rykfríu.
Þessi rúmgrind hentar vel með þeim vefnaði og rúmfatnaði sem höfðar til þín.
Pokagormarnir eru sérpakkaðir og því hreyfist hver gormur óháð hinum.