Saga
Fallegar myndir á veggjum geta gert heimilið notalegra og sýnt þinn persónulega stíl. COLORADOGRAN myndirnar fríska upp á hvaða rými sem er. Hvert er leyndarmálið á bak við hagstætt verðið? Við hugsuðum út fyrir kassann og fundum nýjar leiðir til að nota efni sem eru nú þegar til.
„Þetta byrjaði allt þegar við fórum að skoða hvort pappalok af kössum gætu virkað sem veggskreyting,“ segir Louise Edwards, vöruhönnuður. „Til þess að finna mynstur sem hentaði listunnendum á öllum aldri fengum við aðstoð frá sænsku listadúetti sem er aðallega í því að hanna mynstur á textíl.“
Pappalok verða að list
Öll varan er úr pappa – meira að segja krókurinn. „Pappír þarf ekki endilega að þýða hagstæðara verð, en vegna þess að við vorum nú þegar í pappaframleiðslu þurftum við ekki að fjárfesta í dýrum tækjum og tólum, og þannig náðum við að halda verðinu niðri,“ segir Louise. Hönnuðirnir notuðu úrklippur til að hanna mynstrið, en það er sama aðferð og þau nota í textílhönnun. „Áberandi, litrík og glaðleg mynstur henta ungum og öldnum listunnendum.“
Skapaðu þinn sælureit
Innblásturinn kemur frá náttúrunni; hlykkjóttar plöntur og dýr eins og broddgeltir, drekaflugur og úlfar – dulúðug náttúra færð upp á vegg heima hjá þér. „Að mínu mati er tómur veggur eins og tómur strigi – tómlegur en býður upp á ýmsa möguleika. Bættu við litum og formum og þá fer eitthvað skemmtilegt að gerast. Myndir gera rýmið persónulegra og hlýlegra. Þær eru góð leið til að gera rýmið að þínu.“ COLORADOGRAN gerir þér kleift að breyta til á hagstæðan hátt.