Sjálfbærara efni
SALUDING
Þvottakarfa,
50 l, handgert bambus

7.490,-

Magn: - +
SALUDING
SALUDING

SALUDING

7.490,-
Vefverslun: Til á lager
Færðu hversdagslífinu innri ró með SALUDING körfum. Handgerð úr bambus – náttúrulegu efni sem veitir hlýlega og róandi tilfinningu og breytir rýminu í notalega vin fyrir líkama og sál.
SALUDING þvottakarfa

Skapaðu heilsulindaryfirbragð með bambuskörfum

Allt í drasli? Ekki lengur.

Við hjá IKEA höfum fengið að kynnast heimilislífi fólks vel og eitt sem við höfum komist að er að fólki finnst oft auðveldara að henda þvotti og rökum handklæðum á gólfið í stað þvottakörfu. Þess vegna er gat á loki SALUDING þvottakörfunnar, sem er ofin á víetnamskan hátt. „Þetta er dæmi um hvernig við sameinum útlit og notagildi. Vonandi verður hún til þess að færri handklæði safnist á gólfið ásamt því að veita notalegt andrúmsloft,“ segir Nike. Þegar þú ætlar að setja í þvottavélina lyftir þú einfaldlega lokinu af, tekur innri pokann úr og karfan sjálf stendur eftir líkt og handgert listaverk.

Notagildi og form

„Með réttu þekkingunni og lagninni er hægt að beygja og sveigja bambus og búa til ótrúlegustu hluti,“ segir Nike Karlsson hönnuður hjá IKEA. Þar sem bambus er náttúrulegt efni er engin vara eins. „Hann hefur áþreifanlega áferð og gerir hvert rými hlýlegra.“

Sjá meira Sjá minna

Form/Hönnunarferli

Skapaðu heilsulindaryfirbragð með bambus

Með aðstoð handverksfólks frá Víetnam og Indónesíu höfum við nýtt hraðvaxta bambus í fallega skrautmuni fyrir nútímaleg heimili. SALUDING vörulínan inniheldur handfléttaðar körfur sem passa nánast í hvaða rými sem er. Þær henta vel ef þú vilt skapa afslappað heilsulindaryfirbragð eða ef þú vilt blanda saman snjöllum eiginleikum og fallegri hönnun.

Efni

Hvað er bambus?

Bambus er sterkur, sveignalegur og vex hratt – það er einnig hægt að nota hann á marga vegu og því er hann frábært endurnýjanlegt hráefni. Hann er í raun grastegund sem vex án þess að þurfa á áburði eða vökvun á að halda. Þegar hann hefur verið skorinn upp vaxa nýir stilkar sem hægt verður að nýta eftir fjögur til sex ár. Við hjá IKEA notum bambus meðal annars í húsgögn, baðherbergisvörur, körfur og lampaskerma og erum stöðugt að leita að nýjum leiðum til að nýta þetta fjölhæfa hráefni.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X