TOLKNING
Þvottakarfa á hjólum,
31 l, handgert seljuvíðir

11.990,-

8.990,-

Magn: - +
TOLKNING
TOLKNING

TOLKNING

11.990,-
8.990,-
Vefverslun: Er að klárast
Fjölhæfa og hlýlega TOLKNING línan er úr náttúrulegum trefjum. Þessi þvottakarfa á hjólum er fullkomin til að safna saman óhreinum þvotti og rúlla honum í þvottahúsið – gríptu hann bara með þér á leiðinni!
TOLKNING þvottakarfa á hjólum

Gerðu heimilið náttúrulegra

Þegar við gerðum TOLKNING vörulínuna unnum við náið með færu handverksfólki. Útkoman er falleg og hagnýt vörulína úr náttúrulegum trefjum sem gefa heimilinu karakter og hlýlegan blæ.

Simi Gauba og Kristin Pfannenschmidt eru IKEA vöruhönnuðir í Víetnam sem vinna mikið með náttúrulegar trefjar. „Þegar við hönnuðum Tolkning fengum við aðstoð frá færu handverksfólki sem þekkir styrkleika og veikleika efnisins,“ segir Simi. „Án þeirra gætum við ekki gert þessar vörur.“

Fallegt útlit og góð virkni haldast í hendur

Þegar efnið er meðhöndlað rétt er hægt að móta næstum hvað sem er úr því. „Við getum búið til vörur sem eru bæði fallegar og nytsamlegar. Það er ómögulegt að búa til tvær eins vörur því trefjarnar eru með mismunandi áferð og útlit. Viðskiptavinirnir fá því einstaka vöru með mikinn karakter,“ segir Kristin.

Samspil fólks og náttúru

Simi segir það áskorun að vinna með náttúrulegar trefjar en það er á sama tíma það sem heillar mest. „TOLKNING línan endurspeglar arfleifð sem við viljum varðveita – samspil mannfólksins og náttúrunnar ásamt sérkunnáttu sem erfist milli kynslóða. Ég held að þetta sé ein ástæðan fyrir vinsældum þessara vara. Þær hafa sál og hlýju sem mörgum líkar – henta vel ef þú vilt bæta ósviknum efnivið og náttúrulegri fegurð við heimilið.

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Nike Karlsson, hönnuður

„Hugmyndin á bak við TOLKNING vörulínuna var að skapa sjálfbærar vörur úr náttúrulegum trefjum sem hægt væri að nota á ýmsan hátt víðs vegar um heimilið. Ég notaði skandinavíska arfleifð mína og blandaði henni við þekkingu og kunnáttu handverksfólksins og úr urðu einstakar vörur – gerðar af fólki fyrir fólk. Ég vona að þær komi að gagni, gleðji þig og færi þér ánægju þar sem þú hefur tekið meðvitaða ákvörðun.“


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X