BÅTSKÄR
Eining fyrir vask,
120x60 cm, úti/dökkgrátt

59.950,-

Magn: - +
BÅTSKÄR
BÅTSKÄR

BÅTSKÄR

59.950,-
Vefverslun: Er að klárast
Gott útieldhús getur gert matreiðsluna skemmtilegri. BÅTSKÄR útieldhúsið hefur alla helstu eiginleika góðs eldhúss, líkt og lokaða hirslu, ljúflokur á skápahurðum og flott útlit. Njóttu þín við grillið.
BÅTSKÄR eining fyrir vask

Vertu utandyra í útieldhúsinu þínu

Með BÅTSKÄR útieldhúsi getur þú skolað, brytjað, steikt, grillað og blandað geði við gesti þína undir berum himni. Vissulega er betra að vera inni þegar það rignir en útieldhúsið sjálft þolir ýmislegt. Við höfum séð til þess að það þoli ekki bara vatn heldur líka sól og vind.

„Margir hafa uppgötvað hversu yndislegt það er að elda úti en finnst erfitt að finna lausn utandyra sem er nægilega hagnýt en jafnframt endingargóð og vel hönnuð. Við vildum leysa það með BÅTSKÄR,“ segir Gunilla Hansson, vöruhönnuður.

Allt sem þú býst við í eldhúsi

IKEA hefur þróað eldhús í áratugi og með BÅTSKÄR vörulínunni höfum við fært alla þekkingu okkar og reynslu utandyra. Það hefur sömu virkni og þú getur búist við í eldhúsi innandyra: rúmgott, þægilegir og hreinlegir yfirborðsfletir, góðar hirslur og hurðir með ljúflokum. En það er sveigjanlegra og passar fullkomlega að útisvæðinu þínu. „BÅTSKÄR hefur sérsmíðað yfirbragð en þú þarft ekki að ráða iðnaðarmann til að setja það upp. Þú getur svo auðveldlega bætt við eða fjarlægt hluti þegar þarfirnar breytast og tekið eldhúsið með þér þegar þú flytur.“

Samkomustaður

Fyrir Gunillu og hönnunarteymið var mikilvægt að ná að færa fagurfræðilegu hliðina utandyra. BÅTSKÄR er með hreinar línur, matta gráa áferð og sérhannaða hnúða og höldur. „Við vildum ekki aðeins stuðla að þægilegri og hagnýtri matreiðslu heldur einnig skapa yndislegt umhverfi þar sem allir geta safnast saman og notið nýrra bragða og matarupplifana.“ Kannski náum við að vera örlítið frjálslegri og slaka aðeins betur á öxlunum ef við færum okkur út. Eldamennskan verður allt í einu ánægjulegri, líka á mánudagskvöldum.

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Mikael Axelsson og Lukas Bazle, hönnuðir

„BÅTSKÄR línan snýst um að skapa fullbúið útieldhús, nánast eins og að færa innieldhús út á pallinn eða í garðinn. Við hugsuðum út í hvert smáatriði til að fá sem besta notagildið. Við sóttum innblástur í ínniheldhús þar sem er nóg af vinnuplássi og snjallar lausnir til að auðvelda eldamennskuna og framreiðsluna og njóta félagsskaparins utandyra.“

Efni

Hvað er ryðfrítt stál?

Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa, Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X