Hægt að skera í þá breidd sem óskað er eftir.
Gardínan er snúrulaus sem eykur öryggi barna.
Gataröð tryggir að þú klippir beint og myndar skemmtilegt mynstur þegar ljós skín í gegn um þau.
Samsetningaleiðbeiningarnar innihalda töflu með númerum sem samsvara þeim sem eru á efninu og slám til að auðvelda nákvæma mælingu og skurð.
Auðvelt að stjórna með plasthandföngunum efst eða neðst.
Ekki þarf að bora til að setja upp. Límdu upp með festingunum fjórum sem fylgja með. Límið hefur verið prófað og samþykkt á slétt gler.
Hentar fyrir þakglugga, glugga sem hægt er að halla og glugga sem hægt er að snúa.
Hægt er að klippa gardínuna svo hún passi í minni glugga. Gættu að því að klippa ekki meira en leiðbeiningar segja til um.
Efnið dregur úr dagsbirtu og glampa. Það veitir notalegt næði þar sem fólk sér ekki inn. Þó er hægt að greina útlínur þegar það er dimmt úti en bjart inni.