Ending ábyrgðar 
Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og í þann árafjölda sem gefinn er upp fyrir hverja vöru.

Hvað gerir IKEA til að leysa vandann? 
IKEA skoðar vöruna og tekur ákvörðun um hvort ábyrgðin gildi í hverju tilfelli fyrir sig. IKEA áskilur sér rétt til að úrskurða um það eins fljótt og auðið er eftir að vörunni er skilað. Ef ábyrgðin er í gildi ákveður IKEA hvort gert er við vöruna eða henni skipt út fyrir sömu vöru eða sambærilega. IKEA ber þá kostnað af viðgerð, varahlutum, vinnu og ferðum starfsfólks sem IKEA fær til viðgerðanna. Þetta á þó aðeins við ef varan er aðgengileg án þess að viðbótarkostnaður hljótist af. Þetta á ekki við í þeim tilfellum þar sem viðgerð hefur farið fram án heimildar IKEA. Allir gallaðir hlutar sem fjarlægðir eru við viðgerð eru eign IKEA. Ef varan er ekki lengur seld hjá IKEA verður viðskiptavini útveguð viðeigandi sambærileg vara. IKEA áskilur sér rétt til að ákveða hverju sinni hvað er viðeigandi og sambærileg vara.

Ábyrgðarskilmálar 
Ábyrgðin gildir frá kaupdegi í IKEA. Framvísa þarf upphaflegri kvittun sem staðfestingu á kaupum. Ábyrgðin gildir eingöngu fyrir þann aðila sem upprunalega kaupir vöruna. Hún færist ekki á milli eigenda.

Undantekningar 
Ábyrgðin gildir ekki um vörur sem hafa verið geymdar eða settar saman á rangan hátt, notaðar á óviðeigandi hátt, hlotið slæma meðhöndlun, verið breytt eða hreinsaðar með röngum efnum eða aðferðum. Ábyrgðin nær ekki yfir venjulega notkun, rispur eða skemmdir vegna óhappa eða högga. Ábyrgðin gildir ekki ef vara hefur verið geymd utandyra, í raka eða ef varan hefur verið notuð annars staðar en á heimilum (nema annað sé tekið fram). Ábyrgðin nær ekki yfir skaða vegna tilfallandi eða afleidds tjóns.

Umhirðuleiðbeiningar 
Til að viðhalda ábyrgðinni er nauðsynlegt að fylgja umhirðuleiðbeiningum fyrir hverja vöru. Þú færð nánari upplýsingar um umhirðu í versluninni og á heimasíðunni IKEA.is.

Almenn réttindi 
Þessi ábyrgð veitir þér tiltekin réttindi. Hún hefur á engan hátt áhrif á lagalegan rétt þinn. Geymdu kassakvittunina sem staðfestingu á kaupum. Hún er nauðsynleg til að ábyrgðir séu í gildi. Fáðu nánari upplýsingar um ábyrgðir í ábyrgðarbæklingunum í versluninni.

Umbúðalaust eða As-Is
er sá hluti verslunarinnar þar sem seldar eru vörur í misjöfnu ástandi. Þær eru samsettar vegna þess að þær hafa verið notaðar sem sýnishorn eða voru gallaðar/skemmdar. Þessar vörur eru seldar í því ástandi og ekki er hægt að skila þeim. Ef upp kemur galli á þessum vörum, sem tengist ekki útlitsgöllum eða skemmdum sem voru á vörunni við kaup, þá er 2 ára ábyrgð frá kaupdegi.


Baðherbergi

Daglegt heimilislíf gerir miklar kröfur til húsbúnaðar á baðherberginu. Þess vegna gangast baðvörurnar okkar undir ströng próf til að tryggja að þær uppfylli kröfur okkar um gæði, öryggi og endingu. Vörurnar eru prófaðar samkvæmt ströngustu stöðlum fyrir húsbúnað á heimilum.

  Ábyrgðarskilmálar fyrir baðherbergi (PDF)

Eldhús

Daglegt heimilislíf gerir miklar kröfur til húsbúnaðar á baðherberginu. Þess vegna gangast baðvörurnar okkar undir ströng próf til að tryggja að þær uppfylli kröfur okkar um gæði, öryggi og endingu. Vörurnar eru prófaðar samkvæmt ströngustu stöðlum fyrir húsbúnað á heimilum.

  Ábyrgðarskilmálar fyrir eldhús (PDF)

Svefnherbergi

Daglegt heimilislíf gerir miklar kröfur til dýna og hirslna. IKEA dýnur, PAX fataskápar og hurðir og KOMPLEMENT innvols hafa gengist undir margvíslegar prófanir til að tryggja að þau uppfylli stranga gæða- og endingarstaðla okkar og standist ströngustu kröfur sem gerðar eru til húsbúnaðar.

Ábyrgðarskilmálar fyrir dýnur (PDF)

Ábyrgðarskilmálar fyrir PAX/KOMPLEMENT (PDF)

Skrifstofuhúsgögn

Daglegt líf heima og í vinnunni gerir miklar kröfur til skrifstofuhúsgagna og því höfum við prófað vörurnar okkar ítarlega til að tryggja að þær þoli daglega notkun bæði á vinnustaðnum og á heimilinu.

Ábyrgðarskilmálar fyrir skrifstofuhúsgögn (PDF)

Sófar og hægindastólar

Daglegt heimilislíf gerir miklar kröfur til sófa og hægindastóla. Húsgögnin okkar hafa gengist undir margvíslegar prófanir til að tryggja að þau uppfylli stranga gæða- og endingarstaðla okkar og standist ströngustu kröfur sem gerðar eru til húsbúnaðar.

Ábyrgðarskilmálar fyrir sófa og hægindastóla (PDF)

Geymsluhirslur (BROR)

Daglegt líf heima og í vinnunni gerir miklar kröfur til skrifstofuhúsgagna. BROR hirslurnar hafa verið prófaðar fyrir notkun á vinnustöðum og standast ströngustu kröfur um gæði og endingu.

Ábyrgðarskilmálar fyrir BROR geymsluhirslur (PDF)

Búsáhöld

Daglegt heimilislíf gerir miklar kröfur til eldunaríláta og hnífa. IKEA eldhúshnífar, pottar og pönnur þurfa að gangast undir ströng próf til að tryggja að þau þoli daglega notkun.

Ábyrgðarskilmálar fyrir potta og pönnur (PDF)

Ábyrgðarskilmálar fyrir hnífa (PDF)

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X