Helluborð
Helluborðið er í aðalhlutverki þegar kemur að matreiðslu og er besti vinur þess sem eldar. Spanhelluborðin okkar eru orkunýtin, hraðvirk og einföld í notkun með öllum eiginleikum sem þú þarft á að halda. Hvert og eitt hefur sína eiginleika og þau fást í ýmsum stærðum – fáðu þér eitt með einni eða fleiri stækkanlegum hellum – svo þau henti þér og þínum þörfum.
Þetta þarf að hafa í huga þegar þú velur helluborð:
- Hversu oft notar þú helluborðið? Við bjóðum upp á allt frá stakri ferðahellu að hágæða gas- og spanhelluborðum.
- Hversu mikið eldar þú í einu? Þú getur valið um allt frá litlu helluborði með einni til tveim hellum, að sérlega breiðu helluborði fyrir stóra potta og pönnur.
- Hvers konar kokkur ert þú? Ef þú ert kokkur sem vilt hafa fullkomna stjórn á hitanum skaltu velja span- eða gashellur. Þú getur einnig valið helluborð með stækkanlegum hellum sem hægt er að aðlaga að lögun eldunarílátanna.
Vissir þú að
Ekki er hægt að hafa allar hellurnar í einu á háum hita Hellurnar eru paraðar saman í tvo hópa (vinstri og hægri), sem hvor um sig er tengdur við fasa með hámarksstraumi. Ef þú notar fleiri en eina hellu á sama fasa fer orkustjórnunarkerfið í gang til að tryggja að ekki sé farið yfir hámarksstraum. Það þýðir að sú hella sem var kveikt á fyrr missir orku. Ef þú vilt elda á hámarkshita á tveimur hellum í einu þurfa þær að vera hvor í sínum hópnum.Hvaða hljóð er þetta? Það er fullkomlega eðlilegt að spanhelluborðið þitt gefi frá sér hljóð hvort sem það er lágt suð, flaut eða tikk. Það er hluti af spantækninni og þýðir einfaldlega að það er að vinna vinnuna sína. Þú getur fengið nánari upplýsingar í notkunarleiðbeiningunum um hvernig hljóð þú mátt búast við og hvers vegna þau heyrast.
Sjálfbærni Sparaðu tíma og orku þegar þú eldar! Finnst þér gaman að elda en hefur ekki alltaf tíma til þess? Spanhellur hita potta og pönnur sérlega hratt. Það þýðir að þú ert fljótari að elda og hefur meiri tíma til að sitja og njóta heimagerðra máltíða með fjölskyldu og vinum. Þar sem spanhellur hita einungis eldunarílátin nota þær minna af rafmagni og eru öruggari en aðrar hellur.
Mismunandi gerðir helluborða
Spanhelluborð
Spanhelluborð eru allt að 50% hraðvirkari og nota allt að 40% minna af orku en önnur helluborð. Með einni snertingu getur þú valið mismunandi stillingar.
Spanhelluborð með innbyggðri viftu
Með innbyggðri viftu er engin þörf á háfi fyrir ofan helluborðið – hentar einstaklega vel á eldhúseyju og veitir þér góða yfirsýn. Viftan aðlagast sjálfkrafa að hitastigi helluborðsins.Tilkynning um lagerstöðu
Þú færð tölvupóst þegar varan er til á lager