Við hjálpum þér að hanna draumaeldhúsið
IKEA býður upp á vandaða þjónustu við að hanna eldhús sem er sérsniðið að þínum þörfum og rýminu sjálfu. Oft er erfitt að koma sér af stað í framkvæmdir en við auðveldum ferlið og hjálpum þér að gera hugmynd að veruleika!
Hvaða þjónusta hentar þér best?
- Þú getur mætt í verslunina og fengið ókeypis ráðgjöf í eldhúsinnréttingadeild alla virka daga.
- Þú getur einnig pantað tíma í ráðgjöf til að vera viss um að komast strax að. Athugaðu að ráðgjöfin fer einungis fram á staðnum, ekki er hægt að fá símafund.
- Ráðgjafar sjá um almenna ráðgjöf og frágang pantana.
- Dæmi um ráðgjöf: hjálp við að fylla út hönnunarbeiðni, verðhugmynd gefin og aðstoð við val á innréttingum.
- Áður en þú mætir vertu viss um að vera með málin af eldhúsinu eða notandaaðganginn þinn að IKEA Home Planner teikniforritinu ef teikning er til staðar.
- Hægt er að fá pantanir afgreiddar 24 tímum eftir að gengið er frá kaupum.
Bóka ráðgjöf í eldhúsinnréttingardeild
- Reyndir teiknarar teikna teikna eldhúsið upp fyrir þig án endurgjalds.
- Þú byrjar á að fylla út hönnunarbeiðni og ferð þá á biðlista eftir teikningu. Biðlisti eftir teikningu eru 3-5 virkir dagar.
- Áður en þú sendir inn hönnunarbeiðni mælum við með því að þú kynnir þér vöruúrvalið og hafir sem nákvæmastar upplýsingar um eldhúsið.
- Teiknarar okkar teikna upp eldhúsið í þrívídd út frá hönnunarbeiðni og fylgiskjölum.
- Teiknari sendir þér tillögu ásamt athugasemdum og í samvinnu við þig verður draumarýmið að veruleika.
- Þegar endanleg teikning liggur fyrir mun teiknarinn útbúa lokaverð sem þú notar til að ganga frá kaupum.
- Hægt er að hafa samband við teiknistofu í tölvupósti í netfangið teikningar@ikea.is eða pantað símatíma eða netfund til að fara yfir teikninguna með teiknara.
- Persónuleg þjónusta fylgir þér í gegnum allt ferlið. Teikningarnar og samskiptin eru geymd í ákveðin tíma og því er hægt að hafa samband við teiknarann eftir kaupin.
Fylla út hönnunarbeiðni
- Þú getur notað teikniforritin okkar til þess að skapa og skipuleggja eldhúsið eftir þínu höfði.
- Þú getur alltaf vistað teikninguna og haldið áfram með hana síðar.
- Einfalt í notkun: þú setur inn málin og skilgreinir rýmið.
- Forritið kemur þá með tillögur að mismunandi samsetningum.
- Þú getur síðan breytt teikningunni eftir þörfum.
- Þú getur einnig haft samband við teiknistofu sem vinnur úr teikningunni þinni í samvinnu við þig.
Teikniforrit fyrir eldhús
- Þjónustan er skipuð fyrirtækjaráðgjöfum sem þekkja vel vöruúrval og þjónustuleiðir IKEA.
- Veitt er teikniþjónusta og ráðgjöf við val á innréttingum og skipulagningu ásamt öðrum lausnum án endurgjalds.
- Ráðgjafar veita persónulega þjónustu og spara þér bæði tíma og fyrirhöfn með því að halda utan um kaupferlið.
- Tínsluþjónusta og utanumhald hvort sem vörurnar eru sóttar eða sendar - sparar þér ferðirnar og þar með fjármuni.
- Þegar kemur að stærri verkefnum (t.d. blokkir eða fjölbýlishús) er hægt að óska eftir yfirumsjón frá sérstökum ráðgjöfum sem tryggja að allar vörur séu til staðar fyrir uppsetningu.
- Hægt er að sérpanta vörur ef um mikið magn er að ræða.
Skoðaðu nánar
Nýja IKEA eldhúsið
Kynntu þér ferlið í bæklingnum. Hann leiðir þig áfram skref fyrir skrefn við hönnun mælingar, kaup og uppsetingu á nýja IKEA eldhúsinu þínu
Kynntu þér allt ferlið hér (pdf)