Þú sérð um ástríðuna, við sjáum um skipulagið! Marga dreymir um að reka sitt eigið fyrirtæki en það krefst mikillar vinnu sem getur flækst fyrir fólki. Starfsfólk fyrirtækjaþjónustunnar býður upp á allt frá fyrstu ráðleggingum og afgreiðslu pantana til vöruafhendingar og ráðgjafar um þjónustu.
Hámarkaðu möguleikana sem búa í þínu gistiheimili. Hafðu samband við fyrirtækjaþjónustuna með því að senda póst á sala@IKEA.is.
Gistiheimili og hótel eru heimili að heiman, þótt jafnvel sé aðeins staldrað við í eina nótt. Hvíldin er okkur alltaf mikilvæg, ekki síst á ferðalögum. Í rekstri hótels eða gistiheimilis eru ánægðir gestir besta kynningin og því er gott rúm og dýna stór þáttur í að gesturinn kveðji ánægður. Dýnurnar okkar eru prófaðar samkvæmt ströngum stöðlum um endingu og gæði.
Vinaleg þjónusta og ljúffengur matur sem borinn er fram í hlýlegu umhverfi. Þú veist hvað þarf til að gestunum líði eins og þeir séu velkomnir. Vöruúrval IKEA af borðum, stólum, hirslum og borðbúnaði hjálpar þér að skapa hagnýtt rými sem hentar jafn vel fyrir dögurðinn og kvöldverðinn.