Athugaðu hvort eitthvað mætti betur fara þegar kemur að vatnsnotkun á heimilinu, til dæmis að láta ekki vatn renna að óþörfu niður í niðurfallið. Þú græðir alltaf á því að spara.
Vatnssparnaður á baðherberginu
ÅBÄCKEN stútur notar allt að 95% minna vatn með úðastillingu og 66% minna með spreystillingu, miðað við meðalkrana með 5,7 l/mín vatnsstreymi. Góð leið til að spara heita vatnið!
IKEA blöndunartæki og sturtur eru með innbyggðri síu sem dregur úr vatnsflæði án þess að hafa áhrif á vatnsþrýstinginn.
Vatnssparnaður í eldhúsinu
Ef þú fyllir yfirleitt vaskinn af vatni þegar þú vaskar upp eða skolar grænmeti getur þú prófað að setja vatn í lítið ílát í vaskinum. Vatnsmagnið dugar vel og þú sparar vatn!
Í vöruúrvali IKEA eru ýmsar vörur sem hjálpa þér að spara vatn á einfaldan hátt.
Kalt vatn á kantinum
Með því að geyma könnu með vatni inni í kæliskáp sleppur þú við að láta vatnið renna í hvert skipti sem þú ætlar að fá þér ískaldan vatnssopa og þar með fer ekkert vatn til spillis. Við sóum vatni þegar við látum það renna til að kæla það.