Þó samvera sé stór hluti af því að vera fjölskylda þá er persónulegt rými jafn mikilvægt ... sem getur verið flókið þegar þú deilir svefnherbergi með öðrum en þó alls ekki ómögulegt! Sniðugar hirslur, hentug húsgögn og skilrúm skapa fullkomna aðstöðu fyrir stundir saman og í sitthvoru lagi.

Tveir persónuleikar í einu herbergi

Systurnar sem deila þessu herbergi eru til allrar hamingju bestu mátar. Þær eru þó enn að móta sinn stíl og finna sitt áhugamál og því mikilvægt að gera pláss fyrir ólíka persónuleika í svefnherberginu. Ein einfaldasta lausnin er að setja upp skilrúm með gardínum til að skapa tvö ólík rými. Svo er hægt að draga þær frá þegar þær vilja spjalla!

 

Skoðaðu öll skrifborð

Skipulögð óreiða

Fyrsta skref er að skipta niður herberginu og annað skref er að koma fyrir fataslám, vegghillum og hirslum sem passa undir rúm til að halda öllu snyrtilegu og fínu. Lokaskrefið er að bæta við fallegum rúmfötum, púðum og að sjálfsögðu spegli!

 

Skoðaðu allar gardínur

Svefnherbergi til að eyða tíma saman og í sitthvoru lagi

Töfralausnin þegar morgunhani og nátthrafn deila svefnherbergi er sveigjanleiki! Fallegt skilrúm sem auðvelt er að færa til býr til afmarkaðan stað fyrir kvöldlesturinn. Vandamálið er leyst!

Skoðaðu öll skilrúm

Svalandi stundir

Þegar allt annað bregst geta svefnherbergissvalirnar boðið upp á nokkur augnablik í friði frá ys og þys heimilisins. Lítið borð og stóll, nokkrar pottaplöntur og svalandi drykkur er það eina sem þarf.

 

Skoðaðu öll útiborð

Fallegt baðherbergi til að deila

Það getur verið vandasamt að deila baðherbergi en það er auðveldara með góðum hirslum. Vaskaskápur með tveimur skúffum, handklæðasnagar hlið við hlið og bambusstóll sem geymir handklæði og snyrtivörur leysa vandann.

 

Skoðaðu innblástur fyrir baðherbergi

Dragðu djúpt andann

Stundarfriður á stóru heimili þarf ekki að vera flóknari en að sitja í einrúmi við glugga. Gættu þess að KYRRE kollur sé skammt undan og njóttu kyrrðarinnar á þínum uppáhaldsstað í stundarkorn eftir að allir er komnir út úr húsi á morgnana.

 

Skoðaðu alla kolla

Finnið tíma í einrúmi, saman

Svefnherbergið er athvarf fullorðna fólksins. Bólstrað rúm með freistandi teppi og púðum og notaleg lýsing ásamt lampa með þráðlausri hleðslu færir ykkur allt sem þarf.

Skoðaðu innblástur fyrir svefnherbergi

Svefnherbergisnauðsynjar

Innréttaðu svefnherbergið með hlutum sem skapa ró og næði.
 

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X