VÅRSTA ryðfrítt stál
VÅRSTA framhliðarnar eru úr ryðfríu stáli. Þær eru sterkar, endingargóðar og auðvelt er að halda þeim hreinum – tilvaldar í eldhús ástríðukokka. Stílhreinar og nútímalegar framhliðarnar minna á iðnaðareldhús á veitingastöðum og veita innblástur fyrir ótal gómsæta rétti.
Ábyrgðarskilmálar fyrir eldhús
Miklar kröfur eru gerðar til eldhússins í daglegu lífi. Til að tryggja að eldhúsinnréttingin þoli mikla þyngd, háan hita og daglega notkun eru eldhúsin okkar vandlega prófuð.
Við bjóðum þér 25 ára ábyrgð, sem nær yfir galla í efni og framleiðslu á METOD eldhússkápum.
Eldhús sem sæmir atvinnukokki
Með VÅRSTA framhliðum úr endingargóðu ryðfríu stáli fær eldhúsið flottan iðnaðarblæ. Fíngert og fallegt yfirborðið er bæði glæsilegt og þægilegt í þrifum. Bættu við borðplötu úr gegnheilum við og vönduðum eldhúsáhöldum til að skapa faglegt yfirbragð sem veitir innri kokkinum innblástur um ókomin ár.
Við hjálpum þér að hanna draumaeldhúsið
IKEA býður upp á vandaða þjónustu við að hanna eldhús sem er sérsniðið að þínum þörfum og rýminu sjálfu.