Ímyndaðu þér skrifstofu sem er notalegri en heimaskrifstofan. Falleg og vinnuvistvæn húsgögn, hljóðeinangrun og náttúruleg áferð – hér er skrifstofurými sem sannar að líflegir vinnustaðir geta líka verið afslappaðir og þægilegir. Skapaðu fallegt vinnurými þar sem sköpunarkraftur fær að blómstra.

Náttúrulegar útlínur og mynstur

Dreymir þig um gylltar strendur? Umkringdu þig plöntum og hljóðeinangrandi skilrúmum með sandmynstri. Vinnuvistvænn stóll stuðlar að betri einbeitingu og þægindum en hæðarstillanlegt skrifborð veitir frelsi til að hreyfa sig og bætir líkamsstöðu.

Fundaraðstaða á augabragði

Þegar hugmyndirnar byrja að flæða er gott að geta útbúið aðstöðu á núll einni. Haltu hugmyndunum á lofti með léttum felliborðum á hjólum og notalegum og staflanlegum grænum stólum. Þú einfaldlega rúllar út borði og nokkrum stólum og leyfir nýjum hugmyndum að taka á sig mynd.

 

Skoðaðu MITTZON línuna

Skoðaðu MITTZON línuna

Aukahlutir fyrir skrifstofuna sem skapa afslappað yfirbragð

Hristu upp í skrifstofunni

Stólar og borð af ólíkum gerðum skapa meira flæði í rýminu. Hljóðeinangrandi skilrúm veita næði og vinnusvæðin eru reiðubúin fyrir allt frá óformlegum fundum að formlegum fyrirlestrum og vinnu í einrúmi. Svo er hreyfing besta meðalið við þeim heilsukvillum sem fylgja mikilli kyrrsetu.

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X