Þegar dagur er að kvöldi kominn er gott að vera með róandi umhverfi til gefa heilanum vísbendingu um að brátt sé kominn tími á svefn. Áhersla á lýsingu og þægindi ásamt notalegum smáatriðum skapar gott umhverfi fyrir hvíld. Gerðu svefnherbergið að stað sem þig dreymir um allan daginn.

Róleg stund á þínum uppáhaldsstað

Er eitthvað betra en að sökkva sér niður í mjúkan legubekk eftir annasaman dag? Fullkomnaðu afslöppunina með því að skapa sérstakan stað fyrir rólega stund – gríptu bók og teppi og njóttu kvöldsins. Púðar og kerti gera afslöppunarhornið enn notalegra.

Skoðaðu legubekki

Hófleg birta í lok dags

Blandaðu saman ólíkri lýsingu. Þetta einfaldar þér að skapa réttu stemninguna fyrir háttatímann, til dæmis þegar þú vilt lesa í bók eða skrifa í dagbók. Með lampa og ljós á mismunandi stöðum í herberginu getur þú stillt birtunni í hóf á kvöldin.

 

Sjá alla lýsingu

Sjá alla lýsingu

Að vera með réttu dýnuna ... það eru þægindi!

Hvort sem þú sefur á hliðinni, bakinu eða maganum þá ættir þú að finna réttu dýnuna úrvali okkar. Þú getur bætt við yfirdýnu fyrir aukin þægindi ásamt mjúkum rúmfötum sem veita hlýju og vellíðan þar til þú svífur í draumalönd. Skoðaðu þægindavalið okkar til að athuga hvaða dýna hentar þér best.

 

Skoðaðu þægindavalið

Skoðaðu þægindavalið

Sökktu þér í bólstrað rúm

TUFJORD bólstraða rúmgrindin er grunnurinn að góðri hvíld, hvort sem þú ert að kúra, sofa eða lesa bók fyrir svefninn. Bogadregnar línur höfðagaflsins umvefja þig og veita alla þá mýkt sem þú þarft. Prófaðu þig áfram með mismunandi púða og teppi til að skapa þinn stíl.

 

Skoðaðu bólstruð rúm

Skoðaðu bólstruð rúm

Allt til alls fyrir góðan svefn

Mottur gefa rýminu mýkt

Mottur eru með ýmsa möguleika, þú getur haft eina til að stíga á þegar þú vaknar og aðra sem færir rýminu ákveðinn stíl – þær geta skipt rýminu upp í svæði eftir athöfnum. Þykk motta með háu flosi undirstrikar notalegheitin og lítil motta við rúmið tekur vel á móti þér alla morgna. Þær gefa herberginu samræmt heildarútlit og standa með þér frá morgni til kvölds.

 

Skoðaðu mottur

Skoðaðu mottur

Láttu þér líða vel

Það er kominn háttatími! Snjallvörurnar okkar hjálpa þér að skapa rólega stemningu á heimilinu á fljótlegan hátt. SYMFONISK lampi með hátalara gerir þér kleift að hlusta á róandi tóna við hlýja lýsingu sem hjálpar þér að svífa inn í draumalönd. Lofthreinsitæki hreinsar agnir úr loftinu svo þú andir að þér hreinna lofti þegar þú sefur. Þú getur stillt á hljóðlega svefnstillingu á nóttunni.

 

Skoðaðu snjallvörur

Skoðaðu snjallvörur

Falleg að innan sem utan

Burstaður viðarspónn, gegnheilir viðarhnúðar og tímalaust útlit TONSTAD kommóðunnar færa þér fullkominn felustað fyrir föt, aukahluti og annað. Nýttu hvern krók og kima kommóðunnar með KOMPLEMENT kössum. Þeir sjá um að halda skipulagi og gefa þér yfirsýn þegar þú opnar skúffuna.

Skoðaðu kommóður

Sofðu rótt í notalegu svefnherbergi

Mjúk vefnaðarvara, stillanleg lýsing, afslöppunarhorn og hentugar hirslur breyta nútímalegu svefnherbergi í notalegt rými sem hjálpar þér að fá góðan nætursvefn. Náttborð við rúmið heldur utan um allt sem þú vilt hafa við höndina á kvöldin þar til þú lygnir aftur augunum.

 

Skoðaðu náttborð

Skoðaðu náttborð

Steldu stílnum


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X