Sambúð getur verið vandasöm og því hönnuðum við þetta nútímalega baðherbergi sem hentar ólíkum lífsstíl. Falleg blanda af hvítu, ljósdröppuðu, bláu og náttúrulegu hráefni skapar afslappað andrúmsloft. Hér er hirslupláss í hávegum haft með hentugum lausnum sem virka einnig í forstofunni.

Sniðugar hirslur fyrir friðsamlega sambúð

Vel skipulagðar hirslur eru lykillinn að snyrtilegu sameiginlegu baðherbergi.Svartar hillur skapa flott mótvægi við kassa, körfur og handklæði og færa einföldum stíl nútímalegt yfirbragð.

Skoðaðu baðinnréttingar

Nóg pláss fyrir litlar nauðsynjar

Tíminn á það til að hlaupa frá manni á morgnana. Til að tryggja að jafnvel minnstu hlutir séu á sínum stað og við höndina er gott að hafa sniðuga aukahluti sem einfalda morgunrútínuna. Bambusbakkar í ólíkum stærðum og hvítt sett fyrir tannbursta og sápu færa þér hentugleika án þess að það komi niður á stílnum.

Litlar hirslur með mikilvægi

Réttu aukahlutirnir auðvelda þér að halda skipulagi á persónulegum hlutum.

Skoðaðu aukahluti fyrir baðherbergi

Ólíkar þarfir, sami stíll

þessir sniðugu skápar koma einnig vel út í forstofunni og færa henni sama skandinavíska stíl og er á baðherberginu. Bættu við aukahlutum og skemmtilegum litum til að færa forstofunni karakter.

Frískandi hvítt baðherbergi með nóg af geymsluplássi

Þetta nútímalega baðherbergi er hannað til að svara hirsluþörfum sem flestra. Lokaðar hirslur og opnir skápar, kassar og körfur sjá um að allar snyrtivörurnar rati aftur á réttan stað.

 

Skoðaðu ENHET baðherbergislínuna

Skoðaðu ENHET baðherbergislínuna

Steldu stílnum

Skoðaðu fleiri falleg baðherbergi


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X