Góð loftgæði eru nauðsynleg heilsu okkar og vellíðan en loftið heima hjá okkur getur verið mengað. Agnir frá eldamennsku eða loftmengun sem berst inn og mengandi lofttegundir sem sum hreinsiefni gefa frá sér eru aðeins nokkrar algengar orsakir fyrir menguðu innilofti.
Forsía, sem hægt er að ryksuga, fangar stærri rykagnir og hár. Agnasía nær minni ryk- og frjókornum. Gassía dregur úr lykt og dregur í sig mengandi lofttegundir eins og formaldehýð. Síurnar bæta loftgæði innandyra svo að þú og þínir getið andað að ykkur hreinna lofti.
Með TRÅDFRI þráðlausu millistykki og fjarstýringarbúnaði getur þú kveikt eða slökkt á lofthreinsitækinu án þess að yfirgefa sófann. Ef þú notar einnig TRÅDFRI gátt getur þú tengt millistykkið við IKEA Home smart appið. Þú getur kveikt og slökkt á lofthreinsitækinu og tímastillt það með appinu þannig að það kveikir og slekkur á sér sjálfkrafa.
Með TRÅDFRI þráðlausu millistykki og fjarstýringarbúnaði getur þú kveikt eða slökkt á lofthreinsitækinu án þess að yfirgefa sófann. Ef þú notar einnig TRÅDFRI gátt getur þú tengt millistykkið við IKEA Home smart appið. Þú getur kveikt og slökkt á lofthreinsitækinu og tímastillt það með appinu þannig að það kveikir og slekkur á sér sjálfkrafa.
Það er einfalt að finna því stað. Gættu þess að engin fyrirstaða hindri loftflæði í kringum tækið og að útblásturinn snúi ekki að fólki til að koma í veg fyrir óþægindi. Meðfylgjandi standur getur staðið á gólfi eða borði. Þú getur líka veggfest tækið til að spara pláss. Á lofthreinsitækinu er handfang sem auðveldar þér að færa það á milli herbergja.
Hreint loft er okkur öllum mikilvægt en þó sérstaklega þeim sem þjást af ýmsum sjúkdómum eins og ofnæmi og öndunarfærasjúkdómum. Lofthreinsitæki hreinsa loftið og henta í flest rými, þar með talið barnaherbergi. Gættu þess þó að hafa tækið utan seilingar og festa snúruna tryggilega við vegginn.
Agnasían hreinsar um 99,5% af smáum ögnum eins og PM2,5 agnir, ryk og frjókorn (PM2,5 agnir eru litlar agnir sem við öndum að okkur og eru um 0,1-2,5 míkrómetrar). Gassían, sem notar virkt kolefni, eyðir loftkenndum mengunarefnum og lykt.
Skoðaðu agna- og gassíurnar reglulega, gott er að skipta þeim út á minnst sex mánaða fresti. Heimili eru þó ólík og því gott að skoða þær reglulega og athuga hvort þær séu óhreinar. LED ljós gefur til kynna hvenær þú átt að skoða og mögulega skipta þeim út.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn