Kíktu í heimsókn í vel skipulagt og fallegt herbergi með miklum karakter. Hvert smáatriði er úthugsað með sveigjanleika að leiðarljósi.

Skrítin horn og hallandi loft færa rýminu karakter

Súðin reynist fólki oft áskorun Við lítum þó á hana sem tækifæri. LACK hillur smellpassa og koma einstaklega vel út. MICKE skrifborðið fyllir út í rýmið og fullnýtir plássið.

 

Skoðaðu MICKE

Skoðaðu MICKE

Hentugt haldreipi

Þó snúrum fari fækkandi þá eru þær enn ómissandi hluti af raftækjum og því nauðsynlegt að koma á góðu snúruskipulagi. HAVSKÅL snúruhaldarar eru þér – og snúrunum – til halds og trausts. Sniðug lítil lóð sem halda snúrunum á sínum stað og lífga upp á skrifborðið um leið.

 

Skoðaðu fjöltengi og hleðslutæki

Skoðaðu fjöltengi og hleðslutæki

Einföld rúmfræði

Blanda af opnum og lokuðum hirslum færir þér grunninn. Bættu við nokkrum kössum, tímaritahirslum og öðrum skipulagsvörum þannig að þú sért með allt sem þarf innan handar á skipulagðan og snyrtilegan hátt.

Skoðaðu skipulagsvörur

Skipulagshetjurnar

Fötin skapa manninn

Hvernig væri að breyta herberginu í stóran fataskáp? Fataslá sparar pláss og skartar fallegum fötum og hentugir fatakassar sjá um annað.

 

Skoðaðu fataslár

Skoðaðu fataslár

Kórónaðu útlitið

Þegar þú hefur fundið lausnina fyrir fötin þín vantar aðeins spegil og veggfastan skrifborðslampa til að kóróna fatarýmið. Þú finnur fötin á augabragði og sérð útkomuna í réttu ljósi.

 

Skoðaðu veggljós

Skoðaðu veggljós

Tími fyrir mig

LYCKSELE svefnsófinn er þinn griðastaður. Hann skapar rými til að hlusta á tónlist, slaka á eða jafnvel læra.

 

Skoðaðu sófa og hliðarborð

Skoðaðu sófa og hliðarborð

Sveigjanlegar hirslulausnir

Stofa tekur stakkaskiptum

Þegar dagurinn er að enda kominn þarf einfaldlega að rétta úr sófanum og stofan verður að svefnherbergi. OLSERÖD hliðarborðið er fartölvuborð á daginn en nýtist sem náttborð á kvöldin (SKÅDIS minnistaflan geymir hlutina á daginn). Það eina sem vantar er að velja lagalista eða þátt til að koma sér niður fyrir svefninn.

 

Skoðaðu hátalara

Skoðaðu hátalara

Rými í takt við daginn

Herbergið er sannarlega fallegt og notalegt en aðalstyrkleiki þess er hvernig það lagar sig að verkefnum dagsins. Það breytist auðveldlega úr stofu í svefnherbergi með góðri námsaðstöðu, fatahirslu, gardínum, skrifborðsljósi og hangandi ljósaperum. Allt tengist og er í fullkomnum samhljómi.

 

Skoðaðu gardínur

Skoðaðu gardínur

Steldu stílnum

Sæktu þér innblástur að vinnuaðstöðu á heimilinu

 

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X