Þegar tækifæri gefst, vertu viss um að eiga það sem þarf til að njóta sólarinnar úti á svölum. Hlýir viðar tónar og plöntur hjálpa til við að gera augnablikið ánægjulegra. Gerðu svalirnar að þinni eigin VIP setustofu þar sem þú getur hlaðið batterín og drukkið í þig sólina.
Með nokkur fyrirferðarlítil sæti innan handar getur þú auðveldlega tekið á móti fleiri gestum þegar þá ber að garði. Þegar kollarnir eru ekki í notkun koma þeir vel út á veggnum, gefa af sér náttúrulegt yfirbragð og eru í stíl við viðargólfefni.
Skilrúmið skapar tvö svæði í sama rými þannig að annar hluti getur verið fyrir snarl og spjall undir sólhlíf á meðan þú ert að leyfa þvottinum að þorna á sömu fimm fermetrunum.
Borð, stólar og gólfefni færa svæðinu fallegt og náttúrulegt yfirbragð. Ljósar vefnaðarvörur í stíl við þvottahornið og grænar plöntur galdra fram persónutöfra!
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn