Nýja KRÖSAMOS línan fegrar matarbúrið, býr til minnisstæðar máltíðir og gerir þér kleift að deila þínum eftirlætisbragðbætum með fólkinu sem þú elskar.
Árlegar hefðir
Notaðu KRÖSAMOS sigti og trekt til að búa til edik, sósur eða safa. Frábær leið til að nota ávaxtauppskeruna og bæta fersku bragði við máltíðina.
Hlýlegir haustlitir KRÖSAMOS glerkrukkna færa matarbúrinu stíl. Hér er eldhús hlaðið kryddblöndum og þurrmat – öllu sem þarf til að galdra fram bragðgóðar máltíðir og snarl.
Fagnaðu uppskerunni og búðu til olíublöndur, teblöndur og kryddjurtir. Settu í fallegar umbúðir og gefðu vinum og fjölskyldu. Heimagerðar gjafir færa þér ánægju og sýna öðrum hugulsemi.
Njóttu þess að undirbúa og bera fram næringarríkan mat og sósur með KRÖSAMOS borðbúnaði. Haltu súpum og núðlum heitum með litlum diskum sem nýtast einnig sem lok á skálarnar.
Ræktaðu sambandið við fjölskyldu og vini og bjóddu þeim oftar í mat og drykk. Stílhreint útlitið á KRÖSAMOS línunni hentar alls kyns réttum og borðbúnaði og kemur meira að segja vel út uppstaflað á hillunni.