Borðstofuborðið er yfirleitt vinsælasti staðurinn í veislum og því gott að huga vel að lýsingunni þar í kring. Dimmanlegir borðlampar með hentugri lýsingu í bland við skrautlega ljósaseríu stilla upp góðri aðstöðu fyrir skemmtilegar stundir, jafnvel langt fram á nótt. Lýsing
Með ljósum er auðvelt að skapa afslappað og notalegt andrúmsloft í útisetustofunni með ýmsum leiðum. Prófaðu að stilla upp nokkrum litlum gólflömpum og skreyta svo svæðið fyrir ofan með LED kertum eða ljósaseríum.
Ef þú ert með tré eða annað sem hangir niður getur þú hengt upp rafhlöðuknúin ljós. Einföld leið til að færa notalegum kvöldstundum í góðum félagsskap töfrandi andrúmsloft.
Nokkrir viðarbútar vafðir í ljósaseríu og lagðir í lítið grill, eða jafnvel körfu, búa til skemmtilegt eldstæði sem fólk getur setið í kringum. Alveg hættulaust og því getur þú haft það hvar sem er.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn