Með Nytillverkad snúa nokkrar vel valdar vörur aftur og hafa fengið yfirhalningu til að taka mið af lífsstíl og þörfum nútímaheimila. Þær eru endurgerðar í glaðlegum litum og úr nýju hráefni. Nytillverkad línan hampar hönnunarstíl IKEA sem er einfaldur, hentugur og glettinn.
Ávalt ávallt í tísku
IKEA er nokkuð þekkt fyrir stílhreinar línur og ferhyrningslaga form en mjúkar línur eru einnig mikilvægur hluti af fortíð okkar – og framtíð. Við bjóðum upp á mjúkt og fjaðurkennt með gallasvefnstólnum VÅRKUMLA, slétt og notalegt með lága SOTENÄS hægindastólnum, og ávalt og áberandi með KÄLLARHALS blómavösunum eftir Anna Efverlund.
Það rofar til
Ímyndaðu þér að sofna vært á hvítu, mjúku skýi. Með ÄNGSVITVINGE rúmfötunum þarftu ekki lengur að ímynda þér! Blátt og hvítt mynstrið eftir textílhönnuðinn Sven Fristedt birtist fyrst á einu af fyrstu sængurverunum í vörulista IKEA, 1973. Árið 1981 breytti Sven mynstrinu og það birtist sem SKYAR á rúmfötum, efni og veggfóðri.
Þinn sessunautur!
Snúa, sofa, njóta eða slaka. Hver stóll býr yfir ólíku hlutverki og persónuleika en það sem þeir eiga sameiginlegt er að vera stofustáss. VÅRKUMLA svefnstóllinn getur til dæmis verið hægindastóll, rúm, legubekkur eða sófi!
Tengjum saman fortíð, nútíð og framtíð
Sumar vörurnar eru næstum jafn gamlar og IKEA – ótrúlegt en satt! Skoðaðu nokkrar vinsælar vörur sem hafa öðlast nýtt líf.
Skoðaðu Nytillverkad línuna
Er appelsínugulur vænni en grænn?
Hægindastóllinn MILA eftir hönnuðinn Gillis Lundgren frá árinu 1967 sneri aftur sem DYVLINGE snúningsstóll í grænu og svörtu fyrir ári síðan og viðtökurnar hafa verið ótrúlegar! Nú uppfærum við uppfærsluna með nýjum og áberandi lit.
Anna Efverlund, hönnuður
Anna Efverlund hannaði KÄLLARHALS blómavasana ásamt poppkornsmynstrinu á KLIPPBRÄCKA vörunum. Hún vann fyrir IKEA frá 1980 til 2014 og meðal annars hannaði hún FAMNIG HJÄRTA púðann og gerði SMÅLAND leiksvæðið að veruleika. Ef þú kaupir efnið í KLIPPBRÄCKA línunni mælir hún með að sauma úr því léttan slopp eða mussu!
Poppað mynstur
MODIG KORN mynstrið eftir Anna Efverlund var upprunalega hannað fyrir börn og var hluti af línu sem var innblásin af myndasögum. Poppmynstrið birtist í vörulista IKEA árið 1997 á gulum og grænum rúmfötum. Nú snýr mynstrið aftur og í þetta sinn fyrir eldri markhóp með stóru svörtu og hvítu mynstri á KLIPPBRÄCKA rúmfötum, 3 metra efni og púðaveri.
Sýndu þínar bestu hliðar!
GUIDE hillueiningin birtist fyrst viðskiptavinum IKEA árið 1985. Nú heitir hún BYAKORRE og býður upp á ýmsa möguleika því hillurnar eru hvítar á annarri hliðinni og kolgráar á hinni og kantarnir eru í mismunandi litum. Breyttu um lit eftir árstíðum, gestum eða stemningu.
Endurvakið fyrir þig
Nú færð þú tækifæri til að eignast vinsæla hönnun úr fortíðinni í nýrri og bættri útgáfu.
Skoðaðu Nytillverkad línuna
„Þegar góð hönnun er endurvakin og okkur tekst að bæta hana þá hefur markmiðinu verið náð.“
Rickard ”Rille” Jonsson
Verkefnastjóri nýsköpunar, IKEA of Sweden
Nýr og hressandi POÄNG
Mátulega þægilegur. Nýi POÄNG hægindastóllinn er með lágu baki og er hannaður fyrir gott spjall með vinum, en ekki til þess að fá sér blund. Noboru Nakamura hannaði stólinn sem kemur nú í sölu án höfuðpúðans. Grindurnar og púðarnir koma í rauðu, birkispóni/dröppuðu og svörtu og þú getur því valið þinn stíl.
Tímalaus skandinavísk hönnun fyrir nútímalega stofu
DYKARKLOCKA skermur fyrir loftljós er ný útgáfa af sambærilegum skermi frá 1964 og ÖNNESTAD hægindastóllinn er endurgerð af GOGO hægindastólnum frá 1972 – nú úr 50% minna magni af stáli.