Það er ekki flókið að mæla eldhúsið en það er mjög mikilvægt að málin séu rétt því þau eru grunnurinn að allri hönnunni. Ef þú vilt aðstoð þá bjóðum við upp á mælingarþjónustu sem tryggir að málin séu rétt tekin og skráð niður og þú færð hnitmiðiðaða eldhúsráðgjöf á staðnum. Þjónustan er ókeypis.
Fyrir og á meðan mælingarþjónusta fyrir eldhús stendur yfir
- Byrjaðu á að að skoða hugmyndir og sækja innblástur fyrir draumaeldhúsið á vefnum eða í versluninni og fylltu út hönnunarbeiðni.
Fylla út hönnunarbeiðni
- Bókaðu mælingar á netinu eða pantaðu tíma hjá sölufulltrúa í eldhúsinnréttingadeild.
Pantaðu tíma hér
- Gakktu úr skugga um að rýmið sé tilbúið til mælingar og að ekkert sé fyrir sem gæti truflað mælingu.
- Gert er ráð fyrir að heimsóknin standi yfir í hámark 40 mínútur. Ráðgjafi tekur myndir og safnar öllum nauðsynlegum upplýsingum um eldhúsrýmið, svo sem stærð rýmis, skoðar veggi/horn og staðsetningu hurða, glugga, burðarbita o.s.frv.
Eftir mælingarþjónustu fyrir eldhús
Teiknari sendir þér teikningu með tillögu innan við 5 virka daga frá heimsókn. Hann fer með þér yfir teikninguna og með ykkar samvinnu verður draumarýmið að veruleika. Þegar endanleg teikning liggur fyrir útbýr teiknarinn lokaverð sem þú notar til að ganga frá kaupum.
Mælingaþjónusta felur ekki í sér eftirfarandi:
- Ítarlega ráðgjöf um innanhússhönnun
- Niðurrif á skápum til að kanna ástand lagna eða rafmagns
- Ráðgjöf um viðbótarvinnu