Þú getur auðveldlega falið snúrur með því að leiða þær á milli hillanna og út um snúruúttökin neðan á bekknum.
Skúffurnar og hurðirnar opnast hljóðlega og mjúklega þar sem þær eru með innbyggðum ljúflokum.
Stillanlegar hillur auðvelda þér að laga rýmið að þínum þörfum.
Burstaður viðarspónn færir hverjum hlut einstakt yfirbragð og karakter.
Innfelldar höldurnar og hnúðarnir úr gegnheilli eik hafa stílhreint og fágað útlit og færa húsgagninu fallegan blæ.
Húsgögnin í TONSTAD línunni eru hönnuð á þann hátt að þau passi vel saman. Hafðu eitt stakt eða fleiri saman.