750,-/2 stykki
750
Samantekt
Hirslur fyrir allt heimilið
Það skiptir ekki máli hvar á heimilinu er þörf á hirslu og það skiptir ekki heldur máli hvað það er sem þarf að geyma, þú finnur lausnina í SKÅDIS línunni. SKÅDIS er tilvalin á baðherberginu fyrir tannbursta og skartgripi. Í eldhúsinu fyrir eldhúsáhöldin og kryddið. Í bílskúrnum til að halda utan um verkfæri og skrúfur. Aðeins skortur á ímyndunarafli setur skorður á notkunarmöguleika SKÅDIS línunnar.
Eiginleikar
Hirsla fyrir allt heimilið
Það má setja SKÅDIS hirsluna saman hvernig sem er. Ef þú skiptir svo um skoðun þá er auðvelt að breyta aukahlutunum og búa til nýja hirslu. Festu hirsluna við skrifborð eða hillu eða hengdu hana á vegg.
Efni
Hvað er stál?
Stál hefur þá einstaka eiginleika að þó að það hafi verið teygt og mótað þá heldur það styrk sínum. Það er notað til að styrkja allt frá skýjakljúfum og bílum að rúmgrindum og útihúsgögnum. Stáliðnaðurinn hefur verið að stefna í átt að orkunýtnari framleiðslu og betri gæðum. Stál tapar ekki eiginleikum þegar það er endurunnið og í dag er það eitt af þeim efnum sem mest er endurunnið í heiminum.