10 ára ábyrgð
Þú situr þægilega þar sem hægt er að stilla hæð stólsins.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Eftirgefanlegur svampurinn veitir frábær þægindi sem endast árum saman.
Hjólin eru með bremsubúnaði sem heldur stólnum á sínum stað þegar þú stendur upp og losar um hann þegar þú sest niður.
Samantekt
Sami stóll, bara mýkri og þægilegri
FJÄLLBERGET ráðstefnustóllinn er nú með þægilegra bak og mýkra sæti. Við gerðum að auki útgáfu með hjólum og grind í stíl við stólinn. Fullkomið fyrir allar skrifstofur og til að hafa við borðstofuborðið.
Efni
Hvað er viðarspónn?
Viðarspónn er þunnt lag af við sem fest er á hluti eins og spónaplötu til að gera yfirborðið endingargott og færa því náttúrulega viðaráferð. Algengustu spónartegundirnar eru birki, askur, eik og beyki og við höfum gert sérstakt lakk sem ver spóninn fyrir upplitun og viðheldur náttúrulegri áferð viðarins. Það er mikill kostur ef spónninn er örlítið þykkari því það gefur þér kost á að pússa hann upp og gera við ef eitthvað kemur upp á og þar með lengja endingartíma húsgagnsins.