Skúffustopparar koma í veg fyrir að skúffurnar séu dregnar of langt út.
Þú getur stækkað vinnurýmið með því að raða saman skrifborði og skúffueiningu. Öll skrifborð og skúffueiningar í MICKE línunni eru jafnhá.
Hentar í miðju herbergi þar sem bakhliðin er frágengin.
Hugleiðingar hönnuða
Henrik Preutz hönnuður
„Hugmynd mín að MICKE var að einfalda allt sem við kemur tölvum og farsímum í þessari hátækni veröld. Eins og að hafa samband við vini, hala niður bíómyndum og tónlist, vinna eða prenta út aðgöngumiða. Markmiðið var að skapa ekta draumahúsgagn með margnota eiginleikum í lítið pláss. Einn eiginleikinn er innbyggt pláss fyrir snúrur, þar sem þú getur falið þær. Annar er að allir hlutirnir eru með sömu dýpt og hæð þannig að allir geta raðað þeim saman eftir eigin höfði.“