Nýtt
BÄSINGEN
Salernisrúlluhaldari,
26x17 cm, kolgrátt

1.990,-

Magn: - +
BÄSINGEN
BÄSINGEN

BÄSINGEN

1.990,-
Vefverslun: Til á lager
BÄSINGEN vörulínan inniheldur stílhreinar vörur í kolgráu sem eru hannaðar til að auðvelda ýmis dagleg verk. Salernisrúlluhalsarinn gegnir einnig hlutverki handriðs sem gott er að styðja sig við.
BÄSINGEN salernisrúlluhaldari

Örlítill stuðningur getur gert gæfumuninn

Að stíga upp úr baðkari, ná upp í efstu hillu eða sturta sig í rólegheitum – BÄSINGEN vörurnar eru þér til halds og trausts. Þær eru hannaðar fyrir baðherbergið en margar þeirra getur þú notað á fleiri stöðum á heimilinu.

Þarfir okkar eru síbreytilegar og geta einnig breyst snögglega. „Það geta allir lent í því að fara aðeins of langt í einhverri hreyfingu og vakna með verki. Þá getur verið gott að fá smá stuðning og aðstoð við ýmsar aðgerðir heima við – svo sem að fara í sturtu,“ segir Sarah Fager, hönnuður.

Gott grip

Sarah hóf verkefnið á því að rannsaka þarfir og daglegt líf fólks sem er ekki með fullkomna hreyfigetu. „Það getur verið gott að halda sér í. Með það í huga hönnuðum við handklæðaslána og sturtuhilluna. Tröppurnar og sturtustóllinn standa stöðug og með góðu haldi.“ Sturtustóllinn er líka þægileg tilbreyting. Ímyndaðu þér að sitja í þægilegum stól og njóta heitrar sturtu.

Fallegur húsbúnaður sem auðveldar dagleg verk

Vörurnar eiga sér rætur í skandinavískri hönnunarhefð, þær eru mínimalískar og taka lítið pláss. “Þær eiga að passa inn á hvaða heimili sem er, sama hvaða stíll þar er. Við viljum að þær falli vel inn í heimilið.“ Sarah vonar að vörurnar bæti daglegt líf sem flestra. „Þetta verkefni var krefjandi því það snerist um að mæta þörfum sem ég hef ekki þurft að spá í áður. En það gerði verkefnið líka mjög áhugavert. Ég vona að BÄSINGEN vörurnar geti verið sem lengst inni á heimilum. Þær geta verið stuðningur af og til, þótt þú notir þær ekki alltaf.“

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Sarah Fager, hönnuður

„BÄSINGEN vörulínan er ætluð þeim sem hafa breyttar þarfir heima við. Vörurnar eru hannaðar til að auðvelda ýmsar athafnir á baðherberginu og í eldhúsinu. Stílhrein hönnun og grár litur gerir það að verkum að einfalt er að koma auga á vörurnar. Endingargóðar og nytsamlegar vörur sem færa fólki vonandi aukið sjálfstæði og sjálfstraust.“


Bæta við vörum

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X