1.990,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
VOXNAN
Með VOXNAN, BROGRUND og VALLAMOSSE sturtum viljum við hjálpa þér að spara vatn og orku á meðan þú nýtur hlýrrar og notalegrar sturtu. Til að ná því þurftum við að finna út hvernig mætti ná réttu jafnvægi á milli vatnsþrýstingsins í sturtunum og vatnsnotkunar. Hvernig gátum við það? Nú með því að skella okkur í sundfötin og skrúfa frá.
Áður en við komumst svo langt – jafnvel áður en við litum á öll tæknilegu smáatriðin – tókum við viðtöl við fólk alls staðar að um baðherbergin þeirra og sturtuvenjur. Þá sáum við hversu mikilvægar þessar örfáu mínútur eru undir bununni. Sturtuferðin snýst ekki aðeins um þrif heldur einnig að slaka á og losa sig við stress – taka sér augnablik eða til að undirbúa sig fyrir nýjan dag. Þegar þú nuddar svefninn úr augunum í sturtunni hjálpar vatnsflæðið til. Vissir þú að aðeins 3% af öllu vatni á jörðinni er ferskvatn og meiri hluti þess er bundið í klaka? Þar sem takmarkað ferskvatnið er nauðsynleg uppspretta fyrir allt líf verðum við að fara vel með það.
Hér kemur sturtuúrvalið til sögu. Við vildum einfalda fólki að spara vatn og orku og það tókst okkur með snjallari tækni, hitastýrða blöndunartækinu og sturtuarminum. Antony Smith, sem var hluti af teyminu við framleiðslu á sturtunum, hefur unnið með blöndunartæki og sturtur frá því að hann útskrifaðist úr háskólanum fyrir þó nokkru síðan. Hann lýsir hitastýrðu blöndunartæki sturtunnar sem vél hennar. „Það er blöndunartækið sem tryggir að það er jafnt flæði og rétt hitastig." Antony útskýrir að það er blöndunartækið sem kemur í veg fyrir að hitastigið á vatninu breytist þó einhver skrúfi frá vatni í eldhúsinu. Þú getur haldið áfram að syngja í sturtunni án þess að hafa áhyggjur – og án þess að brenna þig eða fá ískalda gusu yfir þig. Hitastýrða blöndunartækið sem teymið þróaði er einnig með 38°C öryggishnappi og því er eru engar líkur á að þú eða barnið þitt hækkið óvart hitann.
Annað lykilatriði við að búa til bæði þægilegar og sjálfbærar sturtur er lítil skinna sem situr í sturtuarminum sem kemur reglu á vatnsflæði. Áskorunin fyrir teymið var að finna rétt jafnvægi á milli vatnsþrýstings og flæðis, þannig að hægt sé að nota minna af vatni án þess að það dragi úr þægindum. Það var aðeins ein leið fyrir teymið að sjá hvort þeim hafði heppnast ætlunarverkið: „Þegar við fórum til birgis í Kína til að prófa fyrstu frumgerðina tókum við með okkur sundfötin," segir Antony brosandi. Hann prófaði mismunandi stillingar á vatnsflæði í sundfötunum sínum. „Það er misjafnt hvernig fólk vill hafa sturturnar sín og við viljum að hægt sé að laga sturturnar að smekk fólks. Að auki getur það notið sturtunnar enn betur þar sem hún sparar bæði vatn og orku."
Eru brúsar og flöskur á víð og dreif í sturtunni? Einfaldaðu málið með sturtuhillum. Þú getur fest þær við IKEA sturtustöng og fært þær upp eða niður eins og þér hentar. Engin þörf að beygja sig á eftir sjampóinu, hárnæringunni og öllum hinum hlutunum því allt er innan seilingar. Aukahlutirnir á baðherberginu og sturtusettin passa vel saman og því getur þú notið sturtunnar með hlutina þar sem þú þarfnast þeirra í fallegu umhverfi.
Á meðan þú stendur í sturtunni á morgnanna og nuddar þreytuna úr augunum er líklegt að þú takir vatninu sjálfsögðu. Ferskvatn heimsins er þó af skornum skammti og við þurfum að varðveita það. Þess vegna hönnuðum við sturturnar okkar með búnaði sem gerir þér kleift að spara vatn og orku. Galdurinn var að finna rétt jafnvægi á milli vatnskrafts og vantsnotkunar, þannig að þú notir minna vatn án þess að fórna góðri sturtuferð.
Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa, Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
3 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Þú getur fært festinguna upp og niður á stönginni og því haft hilluna í hæð sem hentar þér.
Krómhúðað yfirborðið er endingargott og auðvelt að þrífa.
Vörunúmer 703.285.89
1 pakkning(ar) alls
Þrífðu með rökum klút og mildu hreinsiefni. Þurrkaðu með hreinum klút.
Passar á sturtustangir og stangir sem eru 19-25 mm í þvermál, þarf að vera minnst 58 mm frá vegg.
Passar með öðrum vörum í VOXNAN línunni.
Lengd: | 27 cm |
Breidd: | 14 cm |
Hæð: | 7 cm |
Heildarþyngd: | 0,49 kg |
Nettóþyngd: | 0,43 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 2,3 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 703.285.89
Vörunúmer | 703.285.89 |
Vörunúmer 703.285.89
Breidd: | 25 cm |
Dýpt: | 13 cm |
Hæð: | 6 cm |
Vörunúmer: | 703.285.89 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 27 cm |
Breidd: | 14 cm |
Hæð: | 7 cm |
Heildarþyngd: | 0,49 kg |
Nettóþyngd: | 0,43 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 2,3 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls