Efniviðurinn færir náttúruna inn á heimilið og veitir hlýlega og róandi tilfinningu.
IKEA vinnur með félagslegum fyrirtækjum víðs vegar um heim til þess að hanna einstakar vörur og skapa störf fyrir fólk sem þarf mest á því að halda.
Þessi vara er framleidd af Classical í Bangladesh – félagslegu fyrirtæki sem skapar störf og stöðuga innkomu fyrir konur á dreifbýlum svæðum með framleiðslu á vörum úr júta.
Karfan er úr júta og er handfléttuð af færu handverksfólki á hefðbundinn hátt.
Það er hægt að taka innri pokann af og þvo.
Þægilegt er að grípa í handföngin og bera á milli herbergja.
Júta er með náttúruleg litbrigði og því er hver karfa einstök.