Þú getur haldið snúrunum til haga með því að leiða þær í gegnum snúrugeymsluna á milli fram- og afturfótanna.
Hentar fyrir örvhenta jafnt sem rétthenta þar sem hægt er að festa sveifina á hvora hliðina sem er.
Hægt er að stilla hæðina á borðinu úr 65 í 105 cm með sveifinni, til að tryggja vinnuvistfræðilega stöðu – hvort sem það er sitjandi eða standandi.
Stillanlegir fætur auka stöðugleika skrifborðsins, jafnvel á ójöfnu gólfi.
Ef þú skiptir reglulega um stöðu kemur þú hreyfingu á líkamann, nærð betri afköstum og líður betur.
Hægt er að setja snagann hægra eða vinstra megin á skrifborðið og hengja tösku eða heyrnartól.