2.950,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
GREJSIMOJS
Hvað gerist þegar stór hópur hönnuða kemur saman og kafar ofan í heim leikgleðinnar? Þeir hanna vörulínu með dásamlegum loðnum stólaáklæðum, hátalaramúsum, tanngóðri hirslu og margt fleira – skapað til að hvetja til leiks, alla daga og alls staðar á heimilinu.
„Sífellt fleiri foreldrar gera sér grein fyrir mikilvægi leiks fyrir hamingju og vellíðan barna sinna – og vilja leika meira við þau. GREJSIMOJS línan byggir alfarið á þessari innsýn“, segir Karin Blindh Pedersen, þróunarstjóri.
Þrátt fyrir að vera byggt á rannsóknum um leik þá var hönnunarferlið jafn skemmtilegt og vörurnar sjálfar. Hver hönnuður var beðinn um að byrja þar sem hann fann fyrir mestri leikgleði, í þeirri hversdagslegu iðju þar sem hann gleymir sér í augnablikinu og einfaldlega skemmtir sér – og hanna þannig hluti sem kalla fram bros. „Fyrir mér er leikgleði lífssýn sem ýtir undir sköpunargleði og fær mig til að trúa því að allt sé mögulegt. Ég mun aldrei leyfa barninu innra með mér að vaxa úr grasi.“ segir Marta Krupinska, einn af hönnuðunum á bak við línuna.
Vörurnar í GREJSIMOJS línunni eru allt frá því að vera litríkar og áberandi yfir í að vera stílhreinar og hlutlausar. Þær sameina skemmtun og notagildi og auðvelda þér að koma leiknum af stað, hvort sem þú ferð alla leið eða vilt frekar fela leikgleðina fyrir allra augum. Þær hvetja til leiks um allt heimilið og veita börnum og fullorðnum innblástur til að gefa leikgleðinni lausan tauminn. Ert þú 3 ára, 116 ára eða einhvers staðar þar á milli? Þá er GREJSIMOJS fyrir þig!
„Litagleðin holdi klædd í mjúkum og loðnum vini til að sitja á, klifra upp á og leika sér. Í ímyndunarheimi barns geta jafnvel stólar haft mjúkan feld og sinn eigin persónuleika. Það var það sem ég hafði í huga þegar ég hannaði GREJSIMOJS áklæðið á MAMMUT stólinn – óður til leikgleðinnar! En það bjó líka dýpri hugsun að baki: Að skapa eitthvað nýtt og töfrandi með einhverju sem þú átt nú þegar, í stað þess að kaupa bara nýjan stól Mikilvægur boðskapur – ekki síst fyrir börn.“
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Búðu til litríkt og glaðlegt herbergi með fleiri vörum úr GREJSIMOJS línunni.
Auðvelt að taka af og alveg jafn auðvelt að setja aftur á.
Auðveld leið til að færa nýjum eða gömlum MAMMUT stól alveg nýtt, loðið og glaðlegt yfirbragð.
Með GREJSIMOJS viljum við hvetja til meiri leiks og samveru. Vörurnar kalla fram leikgleði hjá fólki á öllum aldri og um allt heimilið.
Vörunúmer 306.043.67
1 pakkning(ar) alls
Getur hlaupið um allt að 4%. Má þvo í vél við hámark 30°C, viðkvæmur þvottur. Þvoðu með svipuðum litum. Snúðu áklæðinu við og lokaðu áður en þú þværð það. Má ekki setja í klór. Má ekki setja í þurrkara. Má ekki strauja. Má ekki þurrhreinsa. Teygið mottuna til; burstið flosið þegar mottan er þurr. Þvoðu fyrir notkun.
Fyrir 3 ára og eldri.
Passar á MAMMUT stól.
Kembdu áklæðið með bursta eftir þvott til að gera það aftur loðið.
| Lengd: | 45 cm |
| Breidd: | 40 cm |
| Hæð: | 6 cm |
| Heildarþyngd: | 0,41 kg |
| Nettóþyngd: | 0,41 kg |
| Rúmmál hvers pakka: | 10,8 l |
Vörunúmer 306.043.67
| Vörunúmer | 306.043.67 |
Vörunúmer 306.043.67
| Vörunúmer: | 306.043.67 |
| Pakkningar: | 1 |
| Lengd: | 45 cm |
| Breidd: | 40 cm |
| Hæð: | 6 cm |
| Heildarþyngd: | 0,41 kg |
| Nettóþyngd: | 0,41 kg |
| Rúmmál hvers pakka: | 10,8 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls