395,-/9 stykki
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
MÅLA
Teikningar og opnir tússpennar út um allt eldhúsborð. Hljómar það kunnuglega? Þetta er vissulega partur af því að búa með börnum og í raun eitthvað til að gleðjast yfir. Að mála, teikna og föndra er ekki bara skemmtilegt, það er líka mikilvæg leið fyrir barnið til að þroskast. Þegar við bjuggum til MÅLA línuna vildum við taka sköpunargleði barnanna með í reikninginn og hlustuðum á sanna sérfræðinga: börnin sjálf.
Við byrjum alltaf á að skoða hlutina út frá sjónarhorni barnsins til að skilja hvað það er sem það þarfnast. Í þessu verkefni skoðuðum við staðreyndir og innblástur í kennslufræðum með áherslu á sköpun. „Við gerðum okkur grein fyrir því að sköpunarkrafturinn er ekki bara leikur heldur nota börnin hann til að rannsaka og skilja heiminn í kringum sig,“ segir Ina Tidbeck Sjöblom sem er hluti hönnunarteymisins fyrir MÅLA línuna.
Teymið talaði við hóp af börnum sem fengu að prófa frumgerðir og koma skoðunum sínum á framfæri. Hvaða litir eru í uppáhaldi? Hvað fannst þeim um pappírinn? „Börnin höfðu sterkar og skynsamlegar skoðanir. Við áttuðum okkur líka á því hvernig þau nota teikni- og málningargræjur. Til dæmis, ef þú ert fjögurra ára og ert í miðju kafi við að teikna, þá dettur þér ekki alltaf í hug að setja lokið aftur á tússpennann. Þessir pennar endast því í allt að þrjá daga án loks.“ Við gáfum okkur aukatíma í vöruþróuninni til að tryggja mikil gæði á góðu verði. „Það sem börn gera og hvernig þau gera það er mjög mikilvægt. Því tókum við ábendingum þeirra alvarlega og sáum til þess að vörurnar uppfylltu þeirra þarfir.“
MÅLA línan hefur verið til lengi en við höldum áfram að stækka hana og þróa eftir því sem við sjáum nýjar þarfir og fáum nýjar hugmyndir. Það ætti að vera auðvelt að grípa til hennar hvenær sem sköpunargáfan fer á flug. „Barnið ætti ekki að þurfa að hafa foreldri nálægt þegar það vill fara að teikna eða mála. Það að gera hlutina upp á eigin spýtur er mikilvægur hluti af því að þroskast. Barnið stækkar með verkefninu.“
Mála! Klippa! Teikna! MÅLA línan er með allt sem barnið þitt þarfnast til að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Penslar með ómeðhöndluðum viðarsköftum gefa gott grip, skæri sem eru gerð til að passa í litlar hendur og litir sem auðvelt er að blanda og skola af. Þú þarft ekki að nöldra í barninu þínu um að setja tappann aftur á – tússpennarnir þola þrjá daga án tappa. Allt saman án eiturefna, auðvitað því okkur er umhugað um næstu skapandi kynslóðir.
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur því MÅLA vörurnar okkar eru án allra eiturefna og eru því öruggar fyrir börn. Börnin eru jú næsta kynslóð listamanna.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Stórar krítar sem falla vel í litlar hendur. Henta bæði á krítartöflu og stétt.
MÅLA vörurnar eru án allra eiturefna – vegna þess að okkur er jafn umhugað um sköpunargáfu næstu kynslóðar og ykkur.
Sköpun gefur af sér ró og einbeitingu sem kemur sér vel eftir erilsaman skóladag.
Vörunúmer 701.933.21
1 pakkning(ar) alls
VARÚÐ! KÖFNUNARHÆTTA – Hægt að bíta niður í smáa bita. Ekki fyrir börn undir 3 ára.
Fyrir 3 ára og eldri.
Inniheldur: Plastbox með loki og þrjá hvítar og sex litaðar krítar.
Varan er CE-merkt.
Lengd: | 9 cm |
Breidd: | 6 cm |
Hæð: | 4 cm |
Heildarþyngd: | 0,25 kg |
Nettóþyngd: | 0,25 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,2 l |
Vörunúmer 701.933.21
Vörunúmer | 701.933.21 |
Vörunúmer 701.933.21
Lengd: | 8,0 cm |
Fjöldi í pakka: | 9 stykki |
Vörunúmer: | 701.933.21 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 9 cm |
Breidd: | 6 cm |
Hæð: | 4 cm |
Heildarþyngd: | 0,25 kg |
Nettóþyngd: | 0,25 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,2 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls