395,-/4 stykki
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
MÅLA
Teikningar og opnir tússpennar út um allt eldhúsborð. Hljómar það kunnuglega? Þetta er vissulega partur af því að búa með börnum og í raun eitthvað til að gleðjast yfir. Að mála, teikna og föndra er ekki bara skemmtilegt, það er líka mikilvæg leið fyrir barnið til að þroskast. Þegar við bjuggum til MÅLA línuna vildum við taka sköpunargleði barnanna með í reikninginn og hlustuðum á sanna sérfræðinga: börnin sjálf.
Við byrjum alltaf á að skoða hlutina út frá sjónarhorni barnsins til að skilja hvað það er sem það þarfnast. Í þessu verkefni skoðuðum við staðreyndir og innblástur í kennslufræðum með áherslu á sköpun. „Við gerðum okkur grein fyrir því að sköpunarkrafturinn er ekki bara leikur heldur nota börnin hann til að rannsaka og skilja heiminn í kringum sig,“ segir Ina Tidbeck Sjöblom sem er hluti hönnunarteymisins fyrir MÅLA línuna.
Teymið talaði við hóp af börnum sem fengu að prófa frumgerðir og koma skoðunum sínum á framfæri. Hvaða litir eru í uppáhaldi? Hvað fannst þeim um pappírinn? „Börnin höfðu sterkar og skynsamlegar skoðanir. Við áttuðum okkur líka á því hvernig þau nota teikni- og málningargræjur. Til dæmis, ef þú ert fjögurra ára og ert í miðju kafi við að teikna, þá dettur þér ekki alltaf í hug að setja lokið aftur á tússpennann. Þessir pennar endast því í allt að þrjá daga án loks.“ Við gáfum okkur aukatíma í vöruþróuninni til að tryggja mikil gæði á góðu verði. „Það sem börn gera og hvernig þau gera það er mjög mikilvægt. Því tókum við ábendingum þeirra alvarlega og sáum til þess að vörurnar uppfylltu þeirra þarfir.“
MÅLA línan hefur verið til lengi en við höldum áfram að stækka hana og þróa eftir því sem við sjáum nýjar þarfir og fáum nýjar hugmyndir. Það ætti að vera auðvelt að grípa til hennar hvenær sem sköpunargáfan fer á flug. „Barnið ætti ekki að þurfa að hafa foreldri nálægt þegar það vill fara að teikna eða mála. Það að gera hlutina upp á eigin spýtur er mikilvægur hluti af því að þroskast. Barnið stækkar með verkefninu.“
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
MÅLA vörurnar eru án allra eiturefna – vegna þess að okkur er jafn umhugað um sköpunargáfu næstu kynslóðar og ykkur.
Sköpun gefur af sér ró og einbeitingu sem kemur sér vel eftir erilsaman skóladag.
Töflupennarnir eru yndislega litríkir, það er engu líkara en þeir lýsi – og það er auðvelt að storka þá út með blautri tusku eða svampi.
Töflutússpennar með barnvænu gripi.
Vörunúmer 304.565.93
1 pakkning(ar) alls
VARÚÐ! KÖFNUNARHÆTTA – smáhlutir. Ekki fyrir börn undir 3 ára.
Fyrir 3 ára og eldri.
Málningin okkar og penslarnir uppfylla kröfur staðalsins ASTM-D4236. Hann tryggir að myndlistavörur sem geta innihaldið skaðleg efni séu öruggar til notkunar í það sem ætlast er til.
Varan er CE-merkt.
Til að nota á tússtöflum; líftími pennans styttist ef hann er notaður á pappír.
Töflutússpenninn skilur eftir sig varanlega bletti á flestum yfirborðsflötum og efnum en mögulegt er að ná þeim af með því að þvo þá strax með blettaeyði.
Geymið lárétt. Ef liturinn dofnar, geymið þá pennann lóðrétt með oddinn niður í 12 klukkustundir og þá ætti hann að jafna sig.
Varan hentar ekki fyrir andlits- eða líkamsmálningu.
Lengd: | 16 cm |
Breidd: | 8 cm |
Hæð: | 2 cm |
Heildarþyngd: | 0,08 kg |
Nettóþyngd: | 0,07 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,2 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 304.565.93
Vörunúmer | 304.565.93 |
Vörunúmer 304.565.93
Fjöldi í pakka: | 4 stykki |
Vörunúmer: | 304.565.93 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 16 cm |
Breidd: | 8 cm |
Hæð: | 2 cm |
Heildarþyngd: | 0,08 kg |
Nettóþyngd: | 0,07 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,2 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls