Saga
MÅLA trönurnar hafa verið í sölu hjá okkur í meira en 20 ár og hafa þjónað ótal börnum. En alltaf má eitthvað bæta. Við brettum upp ermar og breyttum nokkrum atriðum. Við fengum síðan álit foreldra á nýju trönunum. Athugasemdirnar þeirra gerðu okkur kleift að betrumbæta trönurnar enn meira.
„Í gegnum árin höfum við fengið ýmsar athugasemdir um trönurnar. Til dæmis var erfitt að rúlla upp pappírnum og flókið að brjóta trönurnar saman eftir notkun,“ segir Jorge Omar Santoyo Henaine, starfsmaður í vöruþróun í Barna IKEA.
Lengi má gott bæta
Ásamt birgjanum og hönnuðunum tókst okkur að laga vandamálin, en einnig náðum við að lækka verðið og stækka teikniflötinn. „Þetta auðveldar minni börnum að nota trönurnar og eldri börn geta jafnvel setið á gólfinu á meðan þau mála og teikna.“ En við létum ekki þar við sitja. „Við fengum foreldra til að prófa trönurnar og koma með athugasemdir. Við spurðum þá spurninga og heyrðum álit þeirra.“
Einfaldara að mála – og ganga frá
Foreldrar voru hrifnir af því að hafa bakkann fyrir pensla, liti og fleira úr plasti í stað viðar. Þeir stungu upp á því að hafa bakka á báðum hliðum svo tvö börn gætu skapað á sama tíma. Eitt foreldrið sagði: „Barnið mitt sullar mikið niður og ég vil geta þvegið bakkann í vaskinum.“ „Við ákváðum því að hafa bakkana lausa svo hægt væri að taka þá af. Við viljum gera líf barna og foreldra einfaldara og meira skapandi og það gerum við með því að hafa þau með í ákvarðanatökunni.“