Hvernig sem þú vilt snúa listaverkinu er hægt að snúa lokinu á báða vegu.
Lokinu er smeygt í raufirnar á kassanum og stendur stöðugt þegar þú ert að mála.
Tvöfalt hlutverk: trönur og hirsla fyrir málninguna.
Litaspjaldið er úr akrýlplasti sem er frábært efni til að blanda málningu á og einfalt að þrífa.
SOLFÅGEL línan inniheldur föndurvörur fyrir byrjendur og lengra komna.
Þegar við hönnuðum þessa vörulínu fengum við álit hjá börnum og fagfólki í listheiminum.
Einfalt að blanda saman til að búa til fleiri liti.
Hágæða strigablokk með 16 auðum blöðum sem hægt er að rífa af.
Spaðinn er til þess að blanda málningu og setja lög af akrýlmálningu á striga.
Málning í fimm litum sem þekur vel og þornar hratt. Þess vegna hentar hún vel til þess að mála nokkur lög af málningu, með pensli eða öðrum verkfærum. Fullkomin til að skapa áferð.
Þykkur pappírinn með áþreifanlegri áferð er fullkominn fyrir þau sem vilja æfa sig að mála.