BLÅVINGAD
Kafbátasett,
marglitt

2.990,-

995,-

Magn: - +
BLÅVINGAD
BLÅVINGAD

BLÅVINGAD

2.990,-
995,-
Vefverslun: Til á lager
Vá! Það er mikið um að vera í þessum kafbáti! Fígúrurnar fimm eru úr afgangsefnum sem falla til við vöruframleiðslu okkar. Þeim er annt um umhverfið og vita hvernig við getum minnkað mengun hafsins með því að endurnýta og endurvinna.
BLÅVINGAD kafbátasett

Kafað í hafdjúpin

Glettnir höfrungar, forvitnar skjaldbökur og klárir kolkrabbar. Hafið er töfrandi staður sem gaman er að láta hugann reika um. Þess vegna veitti það okkur innblástur að BLÅVINGAD línunni. Við hönnun línunnar komumst við að því að börnum er afar umhugað um hafið og íbúa þess.

„Börn eru með allt á hreinu þegar kemur að mengun sjávar og áhrif hennar á dýrin. Þau vilja gera eitthvað í málinu og hvetja okkur fullorðna fólkið að gera slíkt hið sama,“ segir Dr Barbie Clarke, barnasálfræðingur. Hún er oft með okkur í svokölluðum umræðuhóp barna, þar sem við tökum viðtöl við börn víðsvegar um heim og fáum að heyra skoðanir þeirra á ýmsum verkefnum okkar.

Hvað leynist undir yfirborðinu?

Hvað ætli það sé við hafið sem heillar börn um allan heim, jafnvel þau sem búa inni í landi? „Hafið og íbúar þess hafa alltaf gegnt stóru hlutverki í ævintýrum og sögum,“ segir Barbie „Þetta er heill heimur neðansjávar, sem er afar dularfullt og spennandi fyrir ímyndunaraflið.“

Leikur er leið til að kanna heiminn

Sögur, leikir og kvikmyndir um hafið eru líkt og gluggi fyrir börnin inn í annan heim, sem er ólíkur þeirra eigin. „Á aldrinum þriggja til sex ára eru ímyndunarleikirnir í hámarki. Þegar börn verða eldri vilja þau smám saman vita meira um hafið,“ segir Barbie. Hún bætir við að þegar börn sökkvi sér í eitthvað viðfangsefni verður það svo miklu meira en bara leikur; þau gleyma áhyggjum sínum, læra um heiminn og víkka sjóndeildarhringinn, líkt og steypireyður sem flýtur áfram til að kanna hafdjúpin.

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Gustav Carlberg, hönnuður

„Ást mín á myndinni Life Aquatic and Jacques Cousteau eftir Wes Andersson er kveikjan að BLÅVINGAD kafbátnum. Ég byrjaði á að hugsa fyrir því sem er ómissandi og skapaði síðan karakter fyrir hvert rými. Ég hef líka bætt við nokkrum óljósum smáatriðum sem hver getur túlkað á sinn hátt. Þannig hef ég skapað svið fyrir ímyndunarafl – heim sem börn geta vakið til lífs með sköpunarkrafti og sögum. Möguleikarnir eru endalausir í hinum dularfulla djúpsjávarheimi.“


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X