Sterkur gegnheill viðurinn er með náttúrulega breytilegt viðarmynstur og litbrigði, og því er hvert húsgagn einstakt. Hér hefur hann verið bæsaður og lakkaður sem gerir hann enn endingarbetri og auðveldari í umhirðu.
Rúmfatahirslurnar rúlla greiðlega á fjórum hjólum og eru aðeins hærri að aftan og framan til að koma í veg fyrir að þær renni of langt undir rúmið, svo það verði ekki erfitt að ná þeim undan.
Til að skapa fallega heild í herberginu er hægt að raða rúminu með öðrum húsgögnum úr SMYGA línunni og bæta við vefnaðarvöru úr NATTSLÄNDA línunni – allt í stíl!