Saga
Hvar verja börnin mestum hluta vökutíma síns á heimilinu? Svarið er líklega í rúminu þeirra. Þar sem lífið nútímabarna snýst oft um síma, spjaldtölvur og vini er þessi „miðstöð“ í raun allt plássið sem þau þurfa. Með VITVAL háu rúmi og koju vildum við búa um þægilegan og notalegan stað fyrir öll börn sem vilja hanga í rúminu. En markmiðið var líka að draga verulega úr efnismagni til að spara auðlindir náttúrunnar.
Málmur er endingargott og stöðugt efni og hentar mjög vel í VITVAL rúmgrindur. Spurningin var bara hversu mikið við gætum dregið úr magninu án þess að draga úr stöðugleika og öryggi. Vöruhönnuðurinn Anna Carme og samstarfsfólk hennar framkvæmdu ítarlega útreikninga og öryggisprófanir. „Við fórum langt,“ segir Anna. „En ekki nógu langt – því okkur fannst rúmgrindurnar enn of þungar.“
30% minna af málmi
Tilraunir með mismunandi efnivið leiddu til þess að teymið ákvað að nota vefnað í rúmhliðarnar. Þetta þýddi að þau náðu að draga úr magni málms um næstum þriðjung miðað við sambærileg rúm. „Við fundum sterkt pólýesterefni sem gefur rúminu einnig notalega tilfinningu – bæði þegar börnin eru að hanga með vinum og þegar tími er kominn fyrir svefn.“
Einfalt í samsetningu
„Efnið er fest á rammann,“ útskýrir Anna. „Og til að tryggja að samsetningin sé einföld fyrir alla foreldra buðum við fjölda fólks að prófa.“ Prófanirnar leiddu síðan til þess að teymið skipti efninu í hluta og gerði gulu kantböndin sveigjanlegri svo auðveldara væri að toga þau til. „Ég elska að leika einkaspæjara, að leita að og rannsaka hvaða kosti við höfum,“ segir Anna. „Það er ekkert betra en tilfinningin sem þú færð þegar þú finnur loksins góða lausn.“