Hægt er að hafa botninn í tveimur mismunandi hæðum.
Góð loftræsting er í botninum, sem veitir barninu þínu betri aðstæður til að sofa vært.
Svefnumhverfi barnsins er öruggt og þægilegt því endingargott efnið í rúmbotninum hefur verið prófað þannig að tryggt sé að líkami þess fái nauðsynlegan stuðning.
Það er hægt að hengja upp eða setja samanbrotin föt í þennan fataskáp, því í honum er fataslá og hillur.
Þú getur auðveldlega breytt skiptiborðinu í rúmgóða hillu þegar barnið verður eldra.
Á milli borðsins og veggsins er pláss fyrir óhreinatauspoka og annað sem þú vilt fela. Plássið er 29 cm á dýpt og 80 cm á hæð.
Skiptiborðið er í þægilegri hæð til að standa við.
Skiptiborðið er með hentugar hirslur innan seilingar; þú getur alltaf haft aðra höndina á barninu.
Fataskápurinn er nógu djúpur fyrir venjuleg herðatré fyrir fullorðna.