Það eru gerðar miklar kröfur þegar börn eiga í hlut. Því er mottan úr slitsterkum gervitrefjum sem hrinda frá sér óhreinindum og er auðveld í umhirðu.
Við vitum að húð barna er afar viðkvæm, en engar áhyggjur. Þessi vara hefur verið prófuð og samþykkt og er algjörlega laus við öll efni sem gætu skaðað húð eða heilsu barna.
Leikteppið helst tryggilega á sínum stað og verndar gegn köldu gólfi þökk sé gúmmíhúðinni undir teppinu.
Flosið á mottunni dregur úr hljóði, er notalegt viðkomu og mjúkt fyrir iljarnar.
Oft leika börnin sér í sameiginlega rýminu. Þá getur verið sniðugt að hafa fallega mottu á ákveðnum stað sem skilgreinir leikaðstöðuna.
Úr 100% endurunnu pólýester sem er mjúkt og þægilegt fyrir viðkvæma húð.
Leikteppið passar inn í alls konar rými því það er í hlutlausum litatónum.
Mottan er nett og einfalt að rúlla henni upp á milli leikja.
Frá frá, Fúsa liggur á! Barnið getur varið mörgum klukkutímum í að æfa sig í að leggja og keyra lestir, eða taka á loft í þyrlu. Fullkomið með bílum og fígúrum úr LILLABO vörulínunni.