Ef þú skiptir reglulega um líkamsstöðu kemur þú hreyfingu á líkamann, nærð betri afköstum og líður betur.
Sveigjanleg og hentug lausn sem hægt er að nota á mismunandi hátt, hvar sem er á heimilinu.
Yfirborð klætt melamínþynnu er endingargott, fær síður á sig bletti og er auðvelt að þrífa.
Ekki láta verðið blekkja þig. Borðið stenst ströngustu kröfur okkar um stöðugleika, endingu og öryggi þannig að það þoli daglega notkun í fjölda ára.
Lögunin og hornin eru rúnnuð sem gera hirslurnar öruggar, bæði fyrir börn og fullorðna.
Hægt er að stilla hæðina á borðinu eins og þér hentar því fæturnir eru stillanlegir frá 65 í 103 cm.
Það er auðvelt að rúlla borðfótunum undir sófa eða rúm því fæturnir eru lágir og hjólin eru falin.
Hægt að hækka og lækka, búnaðurinn er með gasfjöður. Ekki tengt við neinar snúrur og því er auðvelt að færa það til.