Djúp borðplata veitir þér rúmt vinnurými og gefur þér færi á að sitja í þægilegri fjarðlægð frá tölvuskjánum.
Þegar þú skiptir reglulega á milli sitjandi og standandi stöðu heldur þú líkamanum á hreyfingu, þér líður betur og getur bætt afköst.
Undir skemlinum eru gúmmífætur sem halda honum á sínum stað og verja viðkvæm gólfefni.
Yfirborð klætt melamínþynnu er endingargott, fær síður á sig bletti og er auðvelt að þrífa.
Gasfjöðrunin og stálbotninnn gera þér kleift að hækka og lækka borðið hljóðlega, fljótt og örugglega í þá hæð sem þér finnst þægilegust.
Flott, stílhreint skrifborð með möttu yfirborði.
Þetta stillanlega skrifborð þarf ekki rafmagn og því getur þú komið því fyrir hvar sem er og þú losnar við leiðinda snúrur.
Auðvelt er að stilla hæð skrifborðsins úr 72 í 115 cm með því að grípa og halda í handfangið og ýta borðplötunni upp eða niður í ákjósanlega stöðu.