MICKE
Skrifborð,
105x50 cm, hvítt

14.950,-

MICKE
MICKE

MICKE

14.950,-
Vefverslun: Uppselt
Hrein og einföld hönnun sem passar nánast hvar sem er. Bættu öðrum skrifborðum eða hirslum úr MICKE línunni ef þú vilt stækka vinnusvæðið þitt. Flott hönnun með snjöllum eiginleika sem felur snúruflækjurnar.

Samantekt

Pláss til að vinna, vafra og leika

Í MICKE vörulínunni eru rúmgóð vinnuborð og hirslur - fyrir takmarkað pláss. þær eru allar í sömu hæð og dýpt svo það er auðvelt að nota þær saman. Gerðu þér hagnýta og persónulega samsetningu sem samanstendur af einu eða fleirum vinnuborðum með hólfum fyrir kapla undir borðplötunni og sniðugar áhrifaríkar hirslulausnir. Og þú getur auðvitað breytt samsetningunni þegar þig langar til. Það er bara að velja hluti sem þig vantar - og útbúa lausn fyrir þig og tölvuna þína.

Efni

Hvað er samsett plata?

Við notum samsettar plötur í mikið af húsgögnunum okkar, til dæmis í borð og fataskápa. Þær eru léttar en samt stöðugar og endingargóðar. Hver plata er gerð með ramma úr spónaplötu, trefjaplötu eða gegnheilum við sem fyllt er upp í með pappa, að mestu endurunnum. Lögun pappafyllingarinnar gerir hana sérlega endingargóða. Platan er svo húðuð með málningu, þynnu eða viðarspóni eftir því hvaða útlit við viljum fá.

Hugleiðingar hönnuða

Henrik Preutz hönnuður

„Hugmynd mín að MICKE var að einfalda allt sem við kemur tölvum og farsímum í þessari hátækni veröld. Eins og að hafa samband við vini, hala niður bíómyndum og tónlist, vinna eða prenta út aðgöngumiða. Markmiðið var að skapa ekta draumahúsgagn með margnota eiginleikum í lítið pláss. Einn eiginleikinn er innbyggt pláss fyrir snúrur, þar sem þú getur falið þær. Annar er að allir hlutirnir eru með sömu dýpt og hæð þannig að allir geta raðað þeim saman eftir eigin höfði.“


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X