Ferkantað stofuborð sem nýtist þér vel, bæði sem hagnýtt húsgagn og skrautmunur.
Fyrir neðan borðplötuna er opin hilla sem er tilvalin fyrir fallega hluti sem þú vilt hafa til sýnis eða skipulagskassa. Síðan getur þú líka haft hana tóma – borðið er nógu fallegt eitt og sér.
Nútímalegt útlit og blanda af mismunandi efniviðum. Hillurnar úr bambusvið eru rúnnaðar og stálfæturnir standa út frá hliðunum á ská og gefa því mýkt.
Bambus er sterkt, endurvinnanlegt efni. Bambusjurtin er ein af þeim plöntum sem vaxa hraðast í heiminum. Bambus er endingargóður og með örlítilli umhyggju getur hann enst þér í mörg ár.
Hafðu það eitt og sér eða með öðrum hlutum úr JÄTTESTA línunni.