Þú getur breytt þessu fjölhæfa borði úr lágu sófaborði í örlítið hærra hliðarborð eftir þörfum.
Snjöll hönnun hliðarborðsins gerir þér kleift að renna borðplötunni að þér til að njóta máltíðarinnar fyrir framan sjónvarpið án þess að hætta á að fella yfir þig eða að grindin flækist fyrir fótunum.
Borðið er nægilega stöðugt til að borða við það og rúmar vel disk, glas og hnífapör – það er svo auðvelt að þurrka af borðplötunni eftir máltíðina.
Borðinu er breytt með því að taka borðplötuna af, snúa grindinni og festa plötuna aftur með festingunum undir borðplötunni.
Tauvasinn undir borðplötunni er sniðug hirsla fyrir smáhluti sem þú vilt hafa við höndina. Vasinn er festur við grindina með frönskum rennilás og því er auðvelt að taka hann af og þvo.
Þú getur ákveðið hversu fastur vasinn er á grindinni. Því lausari sem skrúfurnar eru því auðveldara er að snúa vasanum og aðlaga hann að því hvernig borðið er notað.
Stílhreinar línur, iðnaðarútlit og dempaðir litir gera það að verkum að borðið passar með flestum húsbúnaði og fellur vel að heimilinu.
Þú getur auðveldlega lyft borðinu og fært það á milli rýma eftir þörfum, til dæmis á milli hægindastólsins og lestrarhornsins.