Saga
Kjötbollur eru órjúfanlegur hluti af sænskri menningu. Það borða þó ekki allir kjöt. Við höfðum því samband við fólk frá þremur heimsálfum, Asíu, Evrópu og Norður-Ameríku, og vildum vita hvað þeim finnst gott og hvað þau elda. Það var þó ekki nóg til að gleðja alla svo við bjuggum líka til kjúklingabollur. Svo bjuggum við til grænmetisbollur. Það var þó ekki nóg til að gleðja alla svo við bjuggum líka til kjúklingabollur. Allar bollurnar auk meðlætis, eins og rjómalöguð sósa og kartöflumús, eru hluti af ALLEMANSRÄTTEN línunni.
Annika Dunnico vann að þróuninni. „Hvort sem þú borðar hvað sem er, ert grænkeri, fylgir mataræði sem tekur mið af trú eða vilt stuðla að fjölbreyttara mataræði – það er réttur hvers og eins að bragða á þessum klassíska IKEA rétti, hvað sem þú velur,“ segir Annika. Hennar uppáhaldsbollur eru sígildu nauta- og svínakjötsbollurnar en hún er líka mjög hrifin af einni annarri tegund. „Mér finnst grænmetisbollurnar alveg frábærar. Þú getur gert svo margt við þær,“ segir hún og útskýrir að leitast var eftir því að bollurnar væru góðar hvernig sem er, hvort sem það væri í karrí- eða BBQ-rétti.
Sjálfbærari kostur
Sjálfbærni var veigamikil ástæða þess að Annika og samstarfsfólk hennar hannaði nýja valkosti. Kjötframleiðsla hefur áhrif á loftslagsbreytingar og ein leið til að sporna við henni er val á mat. Grænmetisfæði hefur minni áhrif á umhverfið okkar. Kjúklingabollurnar hafa allt að fimm sinnum minna loftslagsspor en klassísku kjötbollurnar og grænmetisbollurnar eru enn umhverfisvænni, með allt að 30 sinnum minna loftslagsspor. Kjúklinga- og grænmetisbollurnar eru einnig með lægra fitu- og kaloríuinnihaldi og því heilsusamlegri valkostir. „Þig á eftir að langa í þessar bollur þó þú sért ekki grænkeri eða grænmetisæta,“ segir Annika. „Fólk er bara í leit að góðum mat. Við erum heimsþekkt fyrir kjötbollurnar okkar og nú geta allir fengið eitthvað við sitt hæfi.“