10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Plasthúðaðar borðplötur eru endingargóðar og auðveldar í umhirðu. Með smá alúð haldast þær eins og nýjar í mörg ár. Styttu plötuna í lengd sem hentar þér og notaðu meðfylgjandi kantlista á kantana.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem borðlýsing og til að búa til ákveðna stemningu í eldhúsinu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum dimmi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og stýrt ljósmagninu.
BAGGANÄS stílhreinir hnúðar og höldur gefa af sér nútímalegt yfirbragð. Til í svörtu, látúni og ryðfríu stáli þannig að þú getir valið það útlit sem hentar þínum smekk og heimili.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.
FYNDIG vaskur úr ryðfríu stáli, sem er hreinlegt, endingargott og slitsterkt efni.
Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Hægt er að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hillueiningunum og útlit á borðplötunni og framhliðunum til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að flokka rusl og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
ENHET slá fyrir snaga, ENHET snagar og SKATTÅN ílát auðvelda þér að nýta hvern sentímetra undir opinni ENHET hillueiningu fyrir diskaþurrkur, hnífapör og áhöld.
Grunnskápur fyrir ofn með aukahirsluplássi í skúffunni að neðan fyrir pönnur, bökunarform eða skurðarbretti.
Bættu við skipulagshirslum á borð við kassa og diskastand til að deila niður plássinu, skipuleggja og fullnýta rýmið í skápunum, selt sér.
ENHET snúningshilla veitir þér þægilegt og auðvelt aðgengi að smáhlutum á borð við lykla, bætiefni og kryddstauka. Hún festist auðveldlega á opnar hillueiningar úr ENHET línunni.
12,5 cm háir ENHET fætur setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans. Þeir eru faldir á bak við ENHET sökkul fyrir stílhreint útlit og auðveldari þrif.
Opin vegghilla nýtir vel plássið yfir vaskinum. Tilvalinn staður fyrir borðbúnað, áhöld og aðra hluti sem þú notar oft.
Veggskápur með hurðum nýtir vel plássið yfir borðplötunni. Tilvalinn fyrir glös og borðbúnað og ver þau fyrir ryki.
Opin vegghirsla veitir þér mikið hillupláss fyrir skálar og minni heimilistæki á borð við brauðrist, blöndunartæki og hrísgrjónapott.
Það er pláss á milli grunnskápana sem er hugsað fyrir innbyggða uppþvottavél, seld sér.