10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is
Stílhrein hönnun og góður stuðningur við líkamann, hvort sem þú ert að lesa, spjalla við vini eða bara slappa af í andartak.
Fágað áfast áklæði sem endist lengi. Þú getur valið úr mismunandi áklæðum og fundið það sem er þér að skapi.
Sterkur og stöðugur um ókomin ár því grindin er úr harðgerðum gegnheilum við. Bakið hallar og því tilvalinn fyrir slökun.
Hver hægindastóll er einstakur þar sem viðargrindin er fyrst brúnbæsuð og síðan glærlökkuð og því er náttúrulegt æðamynstrið sýnilegra.
Í sætinu og bakinu er eftirgefanlegur svampur sem nær fyrri lögun sinni þegar þú stendur upp. Að auki eru gormar í sætinu og efni sem veitir góðan stuðning í bakinu.
Háir fætur úr gegnheilum við auðvelda þér að ryksuga eða ná í hluti sem eru í felum undir hægindastólnum.